Birmingham fær Trusty frá Arsenal (Staðfest)
Sunderland kaupir Alese af West Ham


Mynd: EPA


Mynd: Getty Images


Mynd: EPA
Arsenal krækti í bandaríska varnarmanninn Auston Trusty frá Colorado Rapids í janúar og lánaði hann strax aftur vestur yfir haf.
Hann gekk því í raðir Arsenal í sumar en hefur strax verið lánaður aftur út, í þetta sinn til Birmingham í Championship deildinni. Þar getur hann öðlast reynslu úr enska boltanum áður en hann reynir að taka skrefið upp í aðalliðið hjá Arsenal.
Trusty er 23 ára gamall og á yfir 100 leiki að baki í MLS deildinni auk þess að eiga 18 leiki fyrir yngri landslið Bandaríkjanna.
Þá er Sunderland, nýliði í Championship deildinni, búið að krækja í Ajibola Alese frá West Ham fyrir óuppgefið kaupverð.
Alese er miðvörður sem skrifar undir þriggja ára samning við Sunderland með möguleika á auka ári.
Alese skiptir um félag aðeins viku eftir að hafa skorað í 2-0 sigri West Ham í æfingaleik gegn svissneska liðinu Servette.
Alese er 21 árs og hefur aðeins komið við sögu í tveimur leikjum með West Ham.


Mynd: Getty Images
