16.07.22 - 13:57
Brynjar Ingi Erluson
Gnabry framlengir við Bayern til 2026 (Staðfest)

Serge Gnabry verður áfram hjá Bayern

Mynd: Getty Images

Serge Gnabry verður áfram hjá Bayern

Mynd: Getty Images
Þýski landsliðsmaðurinn Serge Gnabry framlengdi í dag samning sinn við Bayern München til næstu fjögurra ára og er því ekki á förum frá félaginu í sumar.
Gnabry, sem er 27 ára gamall, kom til Bayern frá Werder Bremen fyrir fimm árum og er í dag með bestu leikmönnum þýsku deildarinnar.
Arsenal, Chelsea og Manchester City eru meðal þeirra félaga sem hafa sýnt honum áhuga í sumar og var gert ráð fyrir að Bayern myndi selja hann en nú er búið að útiloka þann möguleika.
Gnabry skrifaði í dag undir framlengingu á samningi sínum og er nú samningsbundinn til 2026.
„Ég hef hugsað mikið um hvað mig langar til að afreka sem leikmaður næstu árin og komst að þeirri niðurstöðu að ég vil vera áfram hjá Bayern, vinna allt hér aftur og þá einna helst Meistaradeildina Ég vil fagna titlum, en í þetta sinn með stuðningsmönnunum. Þetta er mjög sérstakt því hér get ég spilað á hæsta stigi með vinum mínum. Ég myndi ekki upplifa það hjá öðru félagi. Ég vil aftur fá að upplifa þessi frábæru augnablik hér og hvergi annarstaðar. Þetta hungur að vinna titla fer aldrei," sagði Gnabry við heimasíðu Bayern.