16.07.22 - 10:06
Elvar Geir Magnússon
Koulibaly orðinn leikmaður Chelsea (Staðfest)

Koulibaly fór í myndatöku í Las Vegas.

Mynd: Getty Images

Koulibaly í landsleik með Senegal.

Mynd: Getty Images

Koulibaly fór í myndatöku í Las Vegas.

Mynd: Getty Images
Chelsea hefur keypt miðvörðinn Kalidou Koulibaly frá Napoli og skrifaði Senegalinn undir fjögurra ára samning.
Koulibaly er 31 árs og gekk í raðir Napoli frá 2014. Hann lék 317 leiki fyrir ítalska liðið.
Chelsea missti varnarmennina Antonio Rudiger (til Real Madrid) og Andreas Christensen (til Barcelona), báða á frjálsri sölu.
„Ég er feikilega ánægður með að vera kominn í lið Chelsea. Þetta er stórt félag á heimsmælikvaraða og ég hef alltaf átt þann draum að spila í ensku úrvalsdeildinni," segir Koulibaly.
„Chelsea reyndi fyrst að fá mig 2016 en samningar náðust ekki. Eftir að hafa rætt við mína góðu vini Edou (Mendy) og Jorginho þá var ákvörðun mín auðveldari."
Koulibaly lék sinn fyrsta leik fyrir senegalska landsliðið 2015 og hefur síðan leikið 62 landsleiki. Hann var fyrirliði þegar Senegal vann Afríkukeppnina 2021.
Hann er annar leikmaðurinn sem Chelsea fær eftir að Todd Boehly eignaðist félagið. Áður hafði félagið keypt Raheem Sterling frá Manchester City,
„Kalidou Koulibaly er einn besti varnarmaður heims og við erum í skýjunum með að bjóða hann velkominn til Chelsea. Hann er frábær leiðtogi og liðsmaður. Hann kemur með mikla reynslu og eiginleika sem munu nýtast liðinu og félaginu í heild," segir Boehly.

Another one. 👌 #KoulibalyIsChelsea pic.twitter.com/fcexST5KSy
— Chelsea FC (@ChelseaFC) July 16, 2022

Koulibaly í landsleik með Senegal.

Mynd: Getty Images