16.07.22 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Tillman kominn til Rangers frá Bayern (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Rangers er búið að staðfesta lánssamning Malik Tillman sem kemur úr herbúðum þýska stórveldisins FC Bayern.
Tillman er tvítugur sóknarsinnaður miðjumaður og fær Rangers kaupmöguleika með lánssamningnum, eitthvað sem fáir fótboltasérfræðingar bjuggust við.
Tillman, sem er fæddur í Þýskalandi, lék tvo leiki fyrir U15 landslið Bandaríkjanna en skipti svo yfir og lék 19 leiki fyrir yngri landslið Þjóðverja áður en hann skipti aftur yfir og valdi Bandaríkin. Hann á tvo landsleiki að baki fyrir Bandaríkin og sjö fyrir FC Bayern.
Rangers er búið að krækja í fimm leikmenn í sumarglugganum og segist Giovanni van Bronckhorst knattspyrnustjóri Rangers vera spenntur fyrir þessum efnilega miðjumanni.
💙 Welcome to Rangers, Malik Tillman.
— Rangers Football Club (@RangersFC) July 15, 2022
