Elsti leikmaður HM leggur hanskana á hilluna

Gordon fyrir Evrópuleik gegn Stjörnunni 2015.

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Markvörðurinn Craig Gordon hefur lagt hanskana á hilluna eftir 25 ára feril. Gordon er 43 ára og var elsti leikmaðurinn sem fór á heimsmeistaramótið sem nú er að klárast.
Hann lék fyrst fyrir Skotland 2004 og lék alls 84 leiki, hann kom ekkert við sögu á HM en hans síðasti landsleikur kom gegn Curacao í maí.

TENGT EFNI
Situr við hliðina á elsta leikmanni HM í klefanum - „Gengið í gegnum þetta allt“
„Ég hefði viljað geta haldið áfram endalaust en það er ekki hægt. Ég hef upplifað drauminn og fyrir það er ég svo þakklátur," segir Gordon.
Gordon hóf ferilinn og lauk honum með Hearts og hans síðasti leikur fyrir félagið kom í janúar. Hann lék einnig fyrir Sunderland og Celtic.
Með Celtic varð hann Skotlandsmeistari fimm sinnum og bikarmeistari tvisvar. Hann á einnig bikarmeistaratitil með Hearts.