Skoski markvörðurinn Craig Gordon er elsti leikmaður heimsmeistaramótsins í ár. Gordon, sem er 43 ára og fimm mánaða gamall, leikur með Hearts í Skotlandi.
Gordon stóð í marki Skotlands þegar liðið tryggði sér sæti á HM í fyrsta sinn í 28 ár. Hann fékk tækifærið vegna meiðsla Angus Gunn, sem er nú kominn til baka og er búist við að verði aðalmarkvörður Skota á mótinu.
Ef Gordon spilar á HM verður hann næstelsti leikmaður í sögu keppninnar á eftir Essam El Hadary sem varði mark Egypta á HM í Rússlandi 2018. El Hadary var 45 ára og 161 dags gamall þegar hann spilaði gegn Sádi-Arabíu.
Fótbolti.net ræddi við Tómas Bent Magnússon, liðsfélaga Gordon hjá Hearts, og spurði hann út í elsta leikmann mótsins.

„Geðveikur karakter. Ég sit við hliðina á honum inni í klefa og það er mikil viska sem kemur út úr honum. Hann hefur gengið í gegnum þetta allt. Geðveikur innan sem utan vallar,“ sagði Tómas.
Hann mun halda með Skotum á mótinu og segist hafa fundið fyrir mikilli stemningu í kringum mótið í Skotlandi.
„Við vorum með tvo leikmenn í Hearts sem voru að fara á HM Lawrance Shankland og Craig Gordon, Shankland reyndar farinn frá okkur en maður fann alveg fyrir miklum anda og stemningu. Þeir hafa ekki verið á HM síðan 1998, það var gríðarleg stemning,“ sagði Tómas jafnframt.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!