16.08.13 - 10:16
Magnús Már Einarsson
Luiz Gustavo til Wolfsburg (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

Wolfsburg hefur keypt miðjumanninn Luiz Gustavo frá FC Bayern.
Gustavo hefur verið orðaður við Arsenal undanfarnar vikur en Wolfsburg hafði betur í baráttunni um leikmanninn.
Þessi 26 ára gamli Brasilíumaður skrifaði undir fimm ára samning við Wolfsburg.

Gustavo átti ekki fast sæti í liði Bayern og hann vildi róa á önnur mið til að eiga meiri möguleika á að tryggja sér sæti í brasilíska landsliðshópnum fyrir HM á næsta ári.
Wolfsburg tapaði fyrir Hannover í fyrstu umferð þýska boltans um síðustu helgi en liðið mætir Schalke á morgun.