Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 16. ágúst 2018 15:00
Elvar Geir Magnússon
Albin Ekdal til Sampdoria (Staðfest)
Albin Ekdal (númer átta) fagnar með sænska landsliðinu.
Albin Ekdal (númer átta) fagnar með sænska landsliðinu.
Mynd: Getty Images
Sampdoria hefur fengið til sín sænska landsliðsmiðjumanninn Albin Ekdal, fyrrum leikmann Juventus.

Ekdal hefur flakkað um Ítalíu, hann kom til Juve 2008 en fór síðan til Siena, Bologna og Cagliari.

Ekdal er 29 ára og hefur verið hjá Hamburger SV í Þýskalandi síðan 2015.

Sampdoria hafnaði í 10. sæti ítölsku A-deildarinnar á síðasta tímabili.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner