Franska félagið PSG hefur keypt varnarmanninn Thilo Kehrer frá Schalke á 33 milljónir punda.
Barcelona hafði einnig augastað á Kehrer en PSG náði að krækja í leikmanninn.
„Það eru miklar tilfinningar sem fylgja því að ganga í raðir Paris Saint-Germain í dag," sagði Kehrer.
Hinn 21 árs gamli Kehrer á 58 leiki að baki með aðalliði Schalke á ferlinum.
Hann varð í fyrra Evrópumeistari með U21 árs landsliði Þýskalands.
Athugasemdir