Lið vikunnar í enska - Sex alls frá Liverpool og Man Utd
Titilvörn Manchester City hófst með tapi gegn Tottenham, Manchester United, Chelsea og Liverpool unnu sannfærandi sigra. Nýliðar Brentford og Watford fara vel af stað. Jamie Vardy tryggði Leicester sigur gegn Wolves, West Ham vann Newcastle 4-2 í stórskemmtilegum leik og Everton og Brighton unnu eftir að hafa lent undir.

Markvörður: Alisson (Liverpool) - Var öryggið uppmálað og tók frábæra vörslu í 3-0 sigri Liverpool gegn Norwich á útivelli.

Mynd: Getty Images

Varnarmaður: Japhet Tanganga (Tottenham) - Steig ekki feilspor í vörn Spurs gegn Manchester City.

Mynd: Getty Images

Varnarmaður: Virgil van Dijk (Liverpool) - Mættur aftur og það með stæl. Var eins og klettur gegn Norwich.

Mynd: Getty Images

Varnarmaður: Trevoh Chalobah (Chelsea) - Hefur verið hjá Chelsea síðan hann var átta ára gamall og það var stór stund þegar hann skoraði í 3-0 sigrinum gegn Crystal Palace.

Mynd: Getty Images

Miðjumaður: Son Heung-min (Tottenham) - Heldur áfram að framleiða mörk á færibandi og skoraði sigurmarkið gegn Englandsmeisturum Manchester City.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Bruno Fernandes (Manchester United) - Skoraði þrennu í 5-1 sigrinum gegn Leeds.

Mynd: EPA

Miðjumaður: Paul Pogba (Manchester United) - Fjórar stoðsendingar gegn Leeds.

Mynd: Getty Images

Miðjumaður: Marcos Alonso (Chelsea) - Skoraði glæsilegt aukaspyrnumark.

Mynd: EPA

Sóknarmaður: Mohamed Salah (Liverpool) - Tvær stoðsendingar og mark gegn Norwich. Egyptinn elskar fyrstu umferðina. Fyrsti leikmaðurinn í sögu ensku úrvalsdeildarinnar til að skora í fyrsta leik tímabils, fimm tímabil í röð.

Mynd: Getty Images

Sóknarmaður: Mason Greenwood (Manchester United) - Ungstirnið skoraði gegn Leeds, flott byrjun á tímabilinu.

Mynd: EPA

Sóknarmaður: Richarlison (Everton) - Fékk ekkert sumarfrí en það sást ekki á honum þegar hann tók þátt í því að vinna Southampton.

Mynd: Getty Images




