Lögreglan í Manchester hefur ekki svarað fyrirspurn sem fréttamaður Fótbolta.net sendi varðandi mál Gylfa Þórs Sigurðssonar fyrr í þessum mánuði.
Fyrirspurnin var send fyrir viku síðan en ekkert svar hefur borist við henni.
Fyrirspurnin var send fyrir viku síðan en ekkert svar hefur borist við henni.
Það er mánuður síðan farbann Gylfa rann út, en hann hefur verið til rannsóknar í rúmt ár vegna gruns um kynferðisbrot gegn ólögráða einstaklingi.
Það var síðast sagt frá því að hann yrði laus gegn tryggingu til 16. júlí á meðan málið væri rannsakað en síðan þá hefur ekkert verið gefið út um framhaldið.
Fótbolti.net hefur reynt að komast að stöðu mála en hefur enn sem komið er ekki fengið neitt svar. Vísir segir frá því í dag að lögreglan í Manchester hafi síðast svarð fyrirspurn þeirra 18. júlí. Þá hafi svarið verið á þá vegu að lögreglan myndi ekki tjá sig um málið fyrr en Gylfi Þór yrði ákærður eða laus allra mála.
Eins og staðan er núna, þá er ekkert vitað hvernig staðan er í þessu tiltekna máli en það kemur vonandi einhver niðurstaða í það á næstunni.
Gylfi sást í fyrsta sinn opinberlega eftir handtökuna fyrr í sumar þegar hann mætti á tvo af landsleikjum Íslands á Evrópumóti kvenna.
Athugasemdir