Fotbolti.net
16.08.23 - 23:02
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Ari pirraður á bekknum: Er allt annar leikmaður en ég var fyrr í sumar

Auglýsing
Ari pirraður á bekknum: Er allt annar leikmaður en ég var fyrr í sumar
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn
„Þetta er bara virkilega gaman, vorum aðeins að ströggla síðustu mínúturnar áður en ég kom inn. Svo komum við þrír inn á og mér fannst þetta breytast þá, fengum ferskar lappir og snögga gæja inn á," sagði Ari Sigurpálsson sem tryggði í raun sigur Víkings gegn KR í kvöld með tveimur mörkum á lokakaflanum eftir að hafa komið inn á sem varamaður.
Þriðja mark Víkings skoraði Ari eftir vel tímasetta sendingu frá Helga Guðjónssyni. KR-ingar kölluðu eftir rangstöðu en niðurstaðan sú að Ari var réttstæður.

„Ég ætla ekki að ljúga því, ég hélt ég væri rangur. Þetta var ekki fínt 'finish' en boltinn fór inn einhvern veginn. Ég hélt þetta væri rangstæða en hann flaggaði ekki, það er eins og það er."

Ari hefur mikið verið á bekknum í sumar, byrjað fáa leiki eftir að hafa komið úr meiðslum í maí.

„Smá erfitt, var meiddur í ökklanum í vetur og svo reif ég allt í lærinu, þannig þetta er búið að vera ströggl. Ég er að koma til baka og menn sjá það inn á vellinum hvernig ég er að spila núna, á móti HK og hérna, ég er allt annar leikmaður en ég var fyrr í sumar."

„Þú sérð hópinn okkar, erum að vinna alla leiki, en auðvitað er ég pirraður að vera á bekknum. Það er bara svoleiðis."


Það eru sögur af áhuga á Ara erlendis frá. Er hann sjálfur meðvitaður um áhugann?

Ég frétti af þessu í viðtali eftir HK leikinn. En þetta er bara áhugi, ekkert komið upp á borðið hjá mér. En ég mun skoða það ef það er eitthvað spennandi og gott fyrir minn feril," sagði Ari.
Þú sérð hópinn okkar, erum að vinna alla leiki

Þú sérð hópinn okkar, erum að vinna alla leiki

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.