Fotbolti.net
16.08.23 - 12:02
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Lavia var hissa á Liverpool

Romeo Lavia.

Romeo Lavia.

Canon

Mynd: Getty Images

Miðjumaðurinn Romeo Lavia er núna að ganga í raðir Chelsea frá Southampton fyrir 58 milljónir punda.
Lavia mun á næstu dögum gangast undir læknisskoðun áður en hann skrifar undir langtímasamning.

Liverpool var mikið á eftir Lavia en Southampton hafnaði þremur tilboðum frá félaginu í hann. Liverpool ákvað svo að bjóða 110 milljónir punda í Moises Caicedo en Ekvadorinn hafnaði Liverpool og fór til Chelsea.

Samkvæmt heimildum Guardian þá var Lavia hissa á því að Liverpool ákvað að bjóða svona mikið í Caicedo í ljósi þess að félagið hafði ekki tekist að ná samkomulagi við Southampton.

Lavia leið eins og hann væri kostur númer tvö hjá Liverpool og leist honum ekki vel á það. Þetta opnaði möguleikann fyrir Chelsea að kaupa Lavia.

<b>Enski boltinn</B> - Alvöru gæði í Enzo og Onana slapp með skrekkinn

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.