16.09.13 - 11:30
Daníel Freyr Jónsson
Kiko Macheda lánaður til Doncaster (Staðfest)

Federico Macheda.

Mynd: Getty Images

Federico Macheda.

Mynd: Getty Images
Manchester United hefur lánað ítalska framherjann Federico Macheda til Doncaster. Hann mun leika með liðinu í Championship-deildinni næsta mánuðinn hið minnsta.
Þessi 22 ára gamli leikmaður hefur ekki náð að standa undir væntingum hjá United, en hann hóf feril sinn með aðalliðinu af krafti árið 2009. Skoraði hann þá sigurmark í uppbótartíma gegn Aston Villa seint á tímabilinu og reyndist það gríðarlega mikilvægt í titilbaráttunni.
Hann hefur undanfarin ár leikið með Sampdoria, QPR og Stuttgart en einungis leikið 19 deildarleiki á ferlinum.
Doncaster situr í 18. sæti Championship-deildarinnar og hafa einungis skorað fimm mörk í sex leikjum.