mán 16. september 2019 18:24
Magnús Þór Jónsson
Byrjunarlið Breiðabliks og Stjörnunnar: Alexander Helgi á miðjunni
Alexander Helgi í leik með Blikum.
Alexander Helgi í leik með Blikum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Byrjunarliðin í grannaslag, Breiðabliks og Stjörnunnar, á Kópavogsvelli eru klár. Liðin mætast í Pepsi Max-deildinni í kvöld, en fyrir leikinn er Breiðablik í öðru sæti og Stjarnan í fjórða sæti.

Breiðablik er enn að reyna að berjast um titilinn á meðan Stjarnan er í Evrópubaráttu.

Blikar bregðast við leikbanni Viktors Arnar Margeirssonar með því að setja Alexander Helga Sigurðsson í hans stað í byrjunarliðið.

Stjörnumenn setja Jósef Kristinn og Alex Þór inn í liðið frá 1-3 tapleiknum við FH í stað Þorra Geirs og Nimo Gribenco.

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu.

Byrjunarlið Breiðabliks:
1. Gunnleifur Gunnleifsson (m)
4. Damir Muminovic
5. Elfar Freyr Helgason
6. Alexander Helgi Sigurðarson
9. Thomas Mikkelsen
10. Guðjón Pétur Lýðsson
11. Höskuldur Gunnlaugsson
25. Davíð Ingvarsson
26. Alfons Sampsted
30. Andri Rafn Yeoman
45. Brynjólfur Darri Willumsson

Byrjunarlið Stjörnunnar:
1. Haraldur Björnsson (m)
2. Brynjar Gauti Guðjónsson
3. Jósef Kristinn Jósefsson
8. Baldur Sigurðsson (f)
9. Daníel Laxdal
10. Hilmar Árni Halldórsson
11. Þorsteinn Már Ragnarsson
18. Sölvi Snær Guðbjargarson
19. Martin Rauschenberg
20. Eyjólfur Héðinsson
29. Alex Þór Hauksson
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner