Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mið 16. september 2020 13:00
Magnús Már Einarsson
Mourinho: Ég reyndi að fá Bale til Real Madrid
Jose Mourinho.
Jose Mourinho.
Mynd: Getty Images
„Gareth Bale er leikmaður Real Madrid. Ég tjái mig ekki um leikmenn hjá öðrum félögum. Ég get ekkert sagt. Það er ekki mitt starf að ræða við umboðsmenn. Ég vil ekki tjá mig um þetta," sagði Jose Mourinho, stjóri Tottenham, á fréttamannafundi í dag aðspurður út í Gareth Bale.

Tottenham er að reyna að fá Bale á láni og góðar líkur eru á að það gangi upp.

Aðspurður hvort hann vilji fá Bale í hópinn sinn sagði Mourinho: „Ég get ekki tjáð mig um svona tilgátur. Hann er leikmaður Real Madrid. Ég verð að virða það."

„Ég reyndi að fá hann til mín þegar ég var hjá Real Madrid en það var ekki hægt á tíma mínum þar. Forsetinn fylgdi mínu innsæi og þekkinu og fékk Gareth til félagsins tímabilið eftir að ég fór. Það er ekkert leyndarmál að ég er hrifinn af honum sem leikmanni. Ég held að Gareth viti það."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner