Þórsarar unnu fyrr í dag 1-0 heimasigur á Ólafsvíkingum í Lengjudeildinni.
Sigurmark leiksins kom á 58. mínútu leiksins þegar Ólafur Aron Pétursson spyrnti boltanum í net gestanna.
„Boltinn hreyfðist vegna vindsins - Frimmi tók spyrnuna og boltinn hafnar í neti Ólsara eftir að hafa skoppað inn á teig Ólsara. Ólsarar kvarta en Aron Elí verður að vera tilbúinn í þennan bolta!!!" skrifaði undirritaður í beinni textalýsingu frá leiknum.

Leikurinn var í beinni útsendingu á Þór TV og birti Gonzalo Zamorano, leikmaður Ólafsvíkinga, klippu úr útsendingunni þar sem sést að boltinn hreyfist áður en Aron spyrnir boltanum.
Guðjón Þórðarson, þjálfari Ólafsvíkinga, var mjög ósáttur við störf dómara leiksins og viðtal við hann, sem og Kristján Sigurólason, aðstoðarþjálfara Þórs, má sjá neðst í fréttinni.
Lestu nánar um leikinn
Ball moving?? No problem..Áfram🤦🏽♂️🤢 pic.twitter.com/XfGYMVm3oW
— Gonzalo Zamorano (@Gonza_zam9) September 16, 2020
Athugasemdir