Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 16. september 2021 09:00
Hafliði Breiðfjörð
Þórður skoraði eftir Zidane snúning (Myndir)
Skagamenn fagna marki Þórðar í gær. Að neðan eru nokkrar myndir en þar má sjá hvernig hann bar sig að við að skora markið.
Skagamenn fagna marki Þórðar í gær. Að neðan eru nokkrar myndir en þar má sjá hvernig hann bar sig að við að skora markið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þórður Þorsteinn Þórðarson bakvörður ÍA skoraði geggjað mark í 1 - 3 bikarsigrinum á ÍR í Breiðholtinu í gær en markið skoraði hann þegar hann jafnaði í 1 - 1.

„Hægri bakvörðurinn jafnar metin, markið lá í loftinu. Átti fyrirgjöf sem skölluð er í burtu og svo er boltanum hreinsað og Þórður kemst í þann bolta. Svo koma gjörsamlega frábær tilþrif hjá Þórði, Zidane-snúningur og svo skot í fjærhornið. Það var virkilega laglegt!" skrifaði Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke í textalýsingunni á Fótbolta.net.

Hér að neðan má sjá ljósmyndir af markinu góða en með sigrinum er ÍA komið í undanúrslit Mjólkurbikarsins þar sem þeir fá Keflavík í heimsókn um mánaðarmótin næstu.
Athugasemdir
banner