Fotbolti.net
16.10.26 - 15:31
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Böddi: Ekkert sem við leikmenn eigum að vera að pæla í eða tjá okkur um

Kom til ÍA frá FH síðasta vetur.

Kom til ÍA frá FH síðasta vetur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍA heimsækir Fram á mánudag í 26. umferð Bestu deildarinnar, næst síðustu umferðinni. Liðin sitja í 3. og 5. sæti deildarinnar og horfa í möguleikann á því að enda í sæti ofar. Leikurinn átti upphaflega að vera spilaður á sunnudag en í morgun var ákveðið að seinka leiknum um sólarhring vegna veðurs.

Böðvar Böðvarsson er leikmaður ÍA og hann ræddi við Fótbolta.net í dag.
Lárus bendir á staðreyndir - „Gríðarlega mikið gerst á þessum 18 mánuðum"
TENGT EFNI

Lárus bendir á staðreyndir - „Gríðarlega mikið gerst á þessum 18 mánuðum"

Sáttur að þurfa ekki að spila í rokinu
Breyting á leikdegi núna tveimur dögum fyrir leik, hefur það einhver áhrif á undirbúninginn ykkar?

„Nei, það hefur engin áhrif myndi ég halda. Maður er búinn að spila á þeim æðislega tíma, mánudegi klukkan 19:15 í allt sumar, þannig ekkert til að kvarta yfir þar. Ég er bara þakklátur að vera ekki í 20 metrunum á sunnudaginn," segir Böddi.

Yrði besti árangur ÍA í 19 ár
Hvernig metur þú tímabilið í ár, er viðunandi niðurstaða að enda í 4.-5. sæti?

„Já, ég myndi segja að besti árangur ÍA í 19 ár, ef við náum þessu 4. sæti, sé viðunandi árangur, þó að við stefndum að sjálfsögðu hærra fyrir tímabilið. Klúbburinn var einum leik frá því að falla í fyrra og komum inn í nýtt tímabil með nýjan kjarna í liðinu sem tekur oft tíma að smyrja saman. Það eru rosalegir karakterar í þessu liði, menn sýndu það í fyrra þegar allt var undir í fallbaráttunni og einnig núna í sumar þegar við vorum aðeins búnir að mála okkur í horn að það býr hellingur í þessu liði og við erum á góðri leið sem klúbbur og lið að mínu mati."

ÍA tapaði fimm leikjum í röð um miðbik móts en náði að snúa genginu við, náði sæti í efri hlutanum og á möguleika á 4. sæti þegar tvær umferðir eru eftir. Á síðasta tímabili var liðið af mörgum afskrifað í fallbaráttunni en náði frábærum endaspretti og bjargaði sæti sínu í deildinni.

Mikill heiður að bera bandið hjá ÍA
Böddi hefur oft á tíðum verið með fyrirliðabandið hjá ÍA á tímabilinu í fjarveru fyrirliðans Rúnars Más Sigurjónssonar.

„Það er bara mikill heiður að bera bandið mikið í sumar hjá jafn stórum klúbbi eins og ÍA. Við erum heppnir að því leyti að það gætu svona átt manns verið með þetta band þannig ég er ekkert of mikið að pæla í því, mikið af leiðtogum í liðinu sem hafa stigið upp í sumar en að sama skapi hefur verið mikill missir af Rúnari í sumar enda ekki bara frábær fótboltamaður heldur mikill leiðtogi sem við söknuðum svo sannarlega."

Greinir ekki aðra klúbba sérstaklega
Vinstri bakvörðurinn kom frá FH síðasta vetur og hann var spurður út í uppeldifélagið. Hvernig hefur verið að fylgjast með þróun gamla liðsins á tímabilinu?

„Ég reyni mitt besta að skipta mér almennt ekki af hlutum sem koma mér ekki við, FH er einn af þeim hlutum í dag. Ég á nógu mikið með sjálfan mig og ÍA til að ég fari að greina gengi annara klúbba eitthvað sérstaklega."

Mjög þakklátur Lárusi
Böddi var að lokum spurður út í þjálfaramálin hjá ÍA. Slúðrað hefur verið um að Heimir Guðjónsson, gamli þjálfari Bödda hjá FH, gæti tekið við liðinu eftir tímabilið af Lárusi Orra Sigurðssyni.

Hvernig sérð þú þetta? Er eitthvað sem leikmenn vita á þessum tímapunkti? Hvernig hefur verið að vinna með Lárusi Orra?

„Það hefur verið frábært að vinna með Lárusi og hans teymi, fáir þjálfarar sem hafa sýnt mér persónulega jafn mikið traust innan og utan vallar eins og hann hefur gert og er ég mjög þakklátur fyrir það. Ég veit bara jafn mikið og þið fjölmiðlamenn um það, ekkert sem við leikmenn eigum að vera að pæla í eða tjá okkur um," segir Böddi að lokum.
Hefur verið í stóru hlutverki í liði Skagamanna.

Hefur verið í stóru hlutverki í liði Skagamanna.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rúnar hefur mikið misst út vegna meiðsla.

Rúnar hefur mikið misst út vegna meiðsla.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Við erum á góðri leið sem klúbbur og lið að mínu mati.

Við erum á góðri leið sem klúbbur og lið að mínu mati.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ég reyni mitt besta að skipta mér almennt ekki af hlutum sem koma mér ekki við

Ég reyni mitt besta að skipta mér almennt ekki af hlutum sem koma mér ekki við

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ég veit bara jafn mikið og þið fjölmiðlamenn um það

Ég veit bara jafn mikið og þið fjölmiðlamenn um það

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.