Fotbolti.net
16.10.26 - 14:30
Kári Snorrason

Stuðningsmenn ÍBV um fallið - „Uppsögn Láka upphafið að endinum“

Sagði óvænt upp störfum undir lok síðasta árs.

Sagði óvænt upp störfum undir lok síðasta árs.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍBV féll niður úr Bestu deildinni um síðustu helgi eftir tveggja ára veru í deildinni. Mikið hefur gengið á í Vestmannaeyjum undanfarið ár en liðið var hársbreidd frá því að enda í efri hluta tvískiptingarinnar á síðustu leiktíð.

Þorlákur Árnason gerði sterkt tilkall til að verða þjálfari ársins en hann sagði óvænt upp störfum undir lok síðasta árs. Við tók mánaðarlöng þjálfaraleit og var Serbinn Aleksandar Linta ráðinn til starfa.

Eyjamenn byrjuðu mótið illa en Linta tókst að snúa genginu við og var ÍBV eitt heitasta lið deildarinnar um mitt sumar. Frá 4. júlí hefur liðinu þó ekki tekist að vinna leik og hafði fall vofið yfir liðinu í nokkurn tíma.

Fótbolti.net tók púlsinn á fjórum stuðningsmönnum ÍBV og lagði fyrir þá eftirfarandi þrjár spurningar:

1)Hvernig horfir fallið við þér?

2)Hvað fór úrskeiðis í sumar?

3)Hvernig sérðu framhaldið fyrir þér - Er Linta rétti maðurinn til að leiða liðið áfram?


Smári Jökull Jónsson
1) Tímabilið er heilt yfir vonbrigði, sem segir sig kannski sjálft þegar liðið manns fellur um deild. Þjálfarabreytingarnar síðasta vetur voru vonbrigði, því þegar maður sá möguleika á einhverjum stöðugleika eftir gott tímabil í fyrra, þá hverfur Láki á braut. Inn kemur Linta og eðlilega tók sinn tíma að fá alla til að ganga í takt þó það hafi verið ljóst nokkuð snemma hvernig hann vildi spila.

Meðal annars hafði það áhrif að það voru fengnir inn leikmenn fyrir tímabilið erlendis frá sem voru engan veginn nógu góðir til að spila í Bestu deildinni. En ÍBV komst síðan á beinu brautina og liðið var að spila mjög vel um mitt mót en í félagaskiptaglugganum breytist ýmislegt. Öll liðin í neðri hlutanum styrkja sig og mörg hver ansi duglega. Á meðan tekur ÍBV inn einn nýjan leikmann úr 2. Deildinni, og þó svo að hann hafi að mörgu leyti staðið sig mjög vel þá held ég að það hafi einfaldlega vantað meira, það vantaði meiri breidd og meiri samkeppni um stöður.

2) Ég hefði viljað sjá liðið styrkt, en það er mjög auðvelt fyrir mig að sitja hér við tölvuna og fullyrða að það hafi verið mistök að gera það ekki. Ég geri ráð fyrir að ef möguleikinn hafi verið fyrir hendi, fjárhagslega og að öðru leyti, þá hefði það verið gert. Svo fór ekki og það verða aðrir að svara fyrir hverjar ástæðurnar fyrir því eru. Hvað varðar leikstíl og skipulag þá hefði ég viljað sjá oftar leitað í einfaldari hluti, gamla góða langa boltann fram í staðinn fyrir að spila nánast alltaf út frá aftasta manni og reyna að færa sig þannig upp völlinn.

3) Ég er ekki viss um að það sé endilega rétta skrefið að skipta um þjálfara. Árangurinn var vissulega undir væntingum og leikmennirnir sem sóttir voru fyrir mót voru leikmenn sem hann kom með að borðinu og miðað við gæði þeirra virðist sem hann hafi vanmetið deildina all verulega. Hann náði hins vegar að snúa gengi liðsins við um mitt mót og þó svo að úrslitin undir lokin hafi ekki verið okkur í vil var ýmislegt sem spilaði þar inn í sem endilega er ekki hægt að kenna þjálfaranum um. Ég heyrði ekki af óánægju leikmanna með Linta og ég held að stjórnin þurfi allavega að vera viss um að geta fundið einhvern hæfan og betri í hans stað, taki þeir ákvörðun um að skipta um þjálfara. Ég er ágætlega bjartsýnn á að ÍBV komist aftur upp en ég held að félagið sé að keppa í annarri deild fjárhagslega en flest liðanna í Bestu deildinni. Það þarf að breytast ef ÍBV á að ná að festa sig í sessi í deildinni.


Edda Sif Pálsdóttir
1) Mér finnst þetta bara algjör hörmung. Við byrjuðum tímabilið hræðilega og maður hélt að liðið myndi ekki vinna leik í allt sumar. Svo tók við annað tímabil, frábært, frá lok maí og fram í júlí þar sem liðið tapaði ekki leik og allar áhyggjur af falli flugu út um gluggann. Engum datt í hug á þeim tímapunkti að þetta yrði niðurstaðan og ÍBV ekki í neinni fallumræðu neins staðar. Þá kom hins vegar 5-2 skellur í vesturbænum og síðan hefur liðið ekki unnið leik. Ef einhver getur útskýrt þetta fyrir mér þá er síminn opinn.

2) Ég hef ekki svör við því. Þetta var allt bara svo máttlaust, andlaust og mikið dútl á eigin vallarhelmingi. Maður tók flesta leiki í fósturstellingunni því ef við skoruðum of snemma vissi maður að það myndi ekki endast og ef við lentum undir vissi maður að liðið hefði ekki andann til að snúa leiknum við. Svona yfirleitt. Og það er kannski rétt að taka það fram að ég er á pirringsstiginu núna í sorgarferlinu hafi það farið framhjá einhverjum.

ÍBV fór inn í tímabilið með einn besta markmann deildarinnar en hann var bekkjaður, lenti svo í slysi og endaði í Noregi. Stærsta stjarnan Omar Sowe var inn og út úr liðinu, líklega búinn að stimpla sig út undir lokin en samt markahæstur. Fleiri öflugir leikmenn náðu ekki að skína af hverjum ástæðum. Það er samt ekki hægt að tala um sumarið án þess að nefna kvennaliðið sem hefur haldið í okkur gleðinni.

3) Það er erfitt að segja. Ég er ekki bjartsýn akkúrat núna en maður getur ekki annað en beðið og vonast eftir einhverjum jákvæðum fréttum. Og yfirleitt þarf lítið til að gleðja en þetta verður barningur. Ég þekki Linta ekki persónulega en ég var ekki hrifin til dæmis af viðtalinu við hann fyrir síðasta leik. Þar sem liðið var komið í algjört öngstræti og gat fallið á Akureyri (sem það gerði svo) en hann sagði að þetta væri bara eins og hver annar leikur og undirbúningurinn ekkert öðruvísi. Hann væri ekkert að pæla í stöðunni þannig. Ég vil meiri ástríðu og anda og það þarf í Vestmannaeyjum.


Arnar Gauti Grettisson
1) Þetta eru auðvitað mikil vonbrigði, en þetta hefur legið í loftinu í nokkuð langan tíma. Maður var farinn að gera sér vonir um að eitthvað væri að gerjast þarna um mitt mót þegar við tókum 13 stig úr fimm leikjum og þá leit þetta bara nokkuð vel út. Síðan hefur hins vegar lítið sem ekkert verið að frétta og við höfum ekki unnið fótboltaleik síðan 4. júlí, sem er auðvitað alveg með ólíkindum miðað við hvernig sumir þessara leikja spiluðust.

Þetta er bara sama uppskrift og síðast þegar við komum upp í Bestu deildina. Við höldum okkur sannfærandi uppi á fyrsta tímabili en föllum svo á öðru tímabili, það er alveg þreytt. Second season syndrome er raunverulegt hjá ÍBV.

2) Það er nú yfirleitt þannig þegar lið er fallið þegar tvær umferðir eru eftir að ansi margt hefur farið úrskeiðis. Upphafið að endinum byrjaði auðvitað í desember í fyrra þegar Þorlákur Árnason sagði starfi sínu lausu einn góðan veðurdag, án nokkurs aðdraganda. ÍBV sat þá eftir án þjálfara á miðju undirbúningstímabili, með tilheyrandi áhrifum á leikmannakaup og fleira.

Ég held að það hafi klárlega haft sitt að segja. Því til viðbótar voru teknar slæmar ákvarðanir á leikmannamarkaðnum þegar Linta tók við. Svo ég nefni nokkur dæmi þá gátu Serbarnir sem voru fengnir ekki neitt og voru sendir heim án þess aðrir menn væru fengnir í staðinn. Þá finnst mér ákvörðunin um að láta Marcel Zapytowski, einn besta markmann síðasta tímabils, fara og treysta á Ara í Haraldsstovu í markinu hafa verið röng ákvörðun. Þetta eru meðal annars dæmi um ákvarðanir sem ég held að hafi valdið því að ÍBV féll, til viðbótar við hversu þunnur leikmannahópurinn var á tímabilinu.

Mér finnst það klárlega hafa verið mistök að styrkja liðið ekki meira í sumarglugganum. Það var alveg ljóst að hópurinn var ekki breiður og liðið hefur glímt við mikil meiðsli allt tímabilið. Það mátti því lítið út af bregða svo að liðið myndi lenda í vandræðum, sem kom svo á daginn. Á meðan öll önnur lið í kringum okkur voru að styrkja sig verulega þá sóttum við einn leikmann. Það reyndist okkur, eftir á að hyggja, ansi dýrkeypt.

3) Ég er svolítið á báðum áttum með Linta. Mér fannst liðið á köflum spila ágætis fótbolta án þess að úrslitin væru að detta með okkur. Hann virðist vera hörkuþjálfari en það er á sama tíma erfitt að verja þjálfara sem hefur ekki unnið leik í rúma þrjá mánuði.

Ég myndi ekkert endilega vilja skipta um þjálfara bara til þess að skipta um þjálfara, næg hefur þjálfaraveltan verið á undanförnum tímabilum. Ef það á hins vegar að láta Linta fara, þá þarf annar þjálfari að vera klár í að taka við liðinu strax eftir síðasta leik og vera tilbúinn í að vera með liðið til næstu ára. Það þýðir að mínu mati að sá hinn sami flytji til Eyja með fjölskylduna sína og setjist þar að, hitt hefur verið reynt og gengur ekki til lengri tíma.

Ef ákveðið verður að halda Linta þá verðum við hins vegar bara að vona að hann taki ekki upp á því sama og Láki og segi skyndilega upp einn góðan veðurdag í vetur. Það væri ágætt að komast í gegnum undirbúningstímabilið án þess að þurfa að fara í þjálfaraleit rétt fyrir jól.

Varðandi næsta sumar þá er ég nú alltaf bjartsýnn fyrir hönd ÍBV. Ef okkur tekst að halda nokkuð svipuðum leikmannahópi og í ár og bæta við tveimur til þremur góðum styrkingum, þá vinnur ÍBV Lengjudeildina að ári.


Hallgrímur Júlíusson
1) Þetta er náttúrulega bara gömul saga og ný en ef það er litið raunhæft á þetta þá var okkur spáð að við myndum vera í botnbaráttu og það verður erfitt að rífa liðið aftur upp í efstu deild að ári. Við kom hörku meðbyr um mitt tímabil þar sem menn voru til í að gefa sig alla í verkefnið og náðum við í góð úrslit en það var fljótt að dvína og fljótt að detta niður á sama plan þar sem þetta leit út fyrir að mönnum væri sama um hvernig spilamennskan og staðan í töflunni væri.

2) Hvað fór ekki úrskeiðis? Serbasendingin sem Linta kom með til eyja var vægast sagt vörusvik. Það var spenningur í bænum að þetta yrðu menn sem væru að fara styrkja liðið en þeir hefðu sennilega ekki fengið nema 10 mínútur í leik með KFS sem leikur í 5.deild. Það sem hefur einkennt ÍBV í gegnum árin er eyjahjarta og baráttugleði en það var ábótavant þegar það eru örfáir heimamenn eftir í liðinu og mikið af aðkomumönnum sem leit út fyrir að vera þokkalega sama um stöðu mála.

Mistök að styrkja liðið ekki meira? Já er sennilega rétta svarið, en það hefði þá bara verið enn eitt lotteríið að reyna hitta á útlending sem væri með x-factor. Á hinn bóginn eru bara ekki til fjármunir til að bæta við sig leikmönnum af þeirri stærðargráðu sem KA og stjarnan gerði til dæmis. Rekstrarumhverfið fyrir íþróttafélög er bara að verða erfiðara með hverju árinu þar sem fyrirtæki hafa minna fjármagn til að styrkja félögin. Það væri æskilegt að það væru fleiri leikmenn að skila sér úr unglingastarfinu en raun ber vitni.

3) Ég veit ekki hvort að Linta sé maðurinn í verkefnið, mér finnst vanta alveg þann skilning að ef þú ert ekki með sömu gæði og andstæðingurinn þá er hægt að fara ansi langt á því að berjast og láta finna fyrir sér. Menn þurfa vera tilbúnir í að leggja allt í sölurnar fyrir liðsfélagana og ég veit ekki hvort að Linta nái að framkalla það úr hópnum.

Hversu bjartsýnn er ég á að ÍBV komist upp? Ég vil vera bjartsýnn en raunsær á sama tíma. Ef við náum að halda lykilmönnum og náum að bæta við nokkrum öflugum leikmönnum þá held ég að við séum líklegir í að vera í baráttunni. En ef menn ætla mæta með sama andlausa hugarfarið í næsta tímabil þá getum við gleymt því að vera í baráttu um að komast upp.
Eyjamenn féllu um síðustu helgi.

Eyjamenn féllu um síðustu helgi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Smári Jökull hress að störfum.

Smári Jökull hress að störfum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍBV hefur ekki unnið leik síðan í byrjun júlímánaðar.

ÍBV hefur ekki unnið leik síðan í byrjun júlímánaðar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aleksandar Linta tók við liðinu í upphafi árs.

Aleksandar Linta tók við liðinu í upphafi árs.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eyjamenn taka á móti FH síðdegis í dag.

Eyjamenn taka á móti FH síðdegis í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

„Ef einhver getur útskýrt þetta fyrir mér þá er síminn opinn.“

„Ef einhver getur útskýrt þetta fyrir mér þá er síminn opinn.“

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„ÍBV fór inn í tímabilið með einn besta markmann deildarinnar en hann var bekkjaður, lenti svo í slysi og endaði í Noregi.“

„ÍBV fór inn í tímabilið með einn besta markmann deildarinnar en hann var bekkjaður, lenti svo í slysi og endaði í Noregi.“

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Omar Sowe sneri aftur eftir krossbandaslit á tímabilinu.

Omar Sowe sneri aftur eftir krossbandaslit á tímabilinu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnar Gauti (t.h) ásamt Oliver Magnússyni, einum færasta klippara landsins.

Arnar Gauti (t.h) ásamt Oliver Magnússyni, einum færasta klippara landsins.

Canon

Mynd: Kári Snorrason

Segja það hafa verið ranga ákvörðun að velja Ara í Haraldstovu fram yfir Marcel Zapytowski.

Segja það hafa verið ranga ákvörðun að velja Ara í Haraldstovu fram yfir Marcel Zapytowski.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Komust á gott skrið um mitt mót.

Komust á gott skrið um mitt mót.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hársbreidd frá því að enda í efri hluta tvískiptingarinnar á síðasta ári.

Hársbreidd frá því að enda í efri hluta tvískiptingarinnar á síðasta ári.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eini leikmaður sem ÍBV styrkti sig með í sumarglugganum var Aron Lucas Vokes.

Eini leikmaður sem ÍBV styrkti sig með í sumarglugganum var Aron Lucas Vokes.

Canon

Mynd: ÍBV

Handboltakappinn Hallgrímur Júlíusson.

Handboltakappinn Hallgrímur Júlíusson.

Canon

Mynd: ÍBV

„Gömul saga á ný.“

„Gömul saga á ný.“

Canon

Mynd: Lukasz Wróbel

Framkvæmdastjórinn.

Framkvæmdastjórinn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

,,Ef við náum að halda lykilmönnum og náum að bæta við nokkrum öflugum leikmönnum þá held ég að við séum líklegir í að vera í baráttunni.

,,Ef við náum að halda lykilmönnum og náum að bæta við nokkrum öflugum leikmönnum þá held ég að við séum líklegir í að vera í baráttunni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.