Fotbolti.net
16.12.23 - 19:42
Brynjar Ingi Erluson

Emil Forsberg til New York Red Bulls (Staðfest)

Emil Forsberg er farinn til Bandaríkjanna

Emil Forsberg er farinn til Bandaríkjanna

Canon

Mynd: Getty Images

Sænski landsliðsmaðurinn Emil Forsberg er genginn til liðs við New York Red Bulls frá RB Leipzig.
Forsberg er einn af þeim sem hjálpuðu Leipzig að komast á þann stað sem það er í dag.

Hann var fenginn inn í félagið árið 2015 þegar það spilaði í þýsku B-deildinni og nú átta árum síðar er það talið með stærstu liðum Þýskalands.

Forsberg, sem er 32 ára gamall, var lykilmaður í Leipzig til fjölda ára, en tækifærin hafa verið af skornum skammti undanfarið og ákvað hann því að breyta til.

Svíinn mun halda áfram að spila fyrir Red Bull-samsteypuna, en hann hefur samið við New York Red Bulls sem spilar í MLS-deildinni í Bandaríkjunum. Félagaskiptin voru staðfest í dag, eftir síðasta heimaleik Leipzig fyrir vetrarfrí.

Sóknartengiliðurinn öflugi vann þýska bikarinn tvisvar og ofurbikarinn einu sinni með Leipzig, en áður spilaði hann með Malmö og Sundsvall. Hann á þá 86 landsleiki og 21 mark fyrir Svíþjóð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.