Fotbolti.net
16.12.23 - 21:31
Brynjar Ingi Erluson

Pætur frá KA til Klaksvíkur (Staðfest)

Pætur Petersen

Pætur Petersen

Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Færeyingurinn Pætur Petersen samdi í dag við KÍ/Klaksvík en hann kemur til félagsins frá KA. Samningurinn er til næstu tveggja ára en þetta kemur fram á færeyska miðlinum info.
Pætur kom til KA fyrir síðasta tímabil og skrifaði þá undir þriggja ára samning.

Alls spilaði hann 34 leiki í deild, bikar og Evrópu með KA, þar sem hann gerði fimm mörk, en þó aðeins eitt í deildinni.

Hann er nú farinn frá KA og haldinn aftur heim til Færeyja, en hann samdi við KÍ/Klaksvík til næstu tveggja ára.

KÍ/Klaksvík er ríkjandi meistari í Færeyjum og gerði frábæra hluti í Evrópu þar sem liðið komst alla leið í riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu.

Það var í fyrsta sinn í sögu Færeyja sem lið þaðan kemst í riðlakeppni í Evrópu. Ekki var búist við miklu áður en keppnin hófst en það sótti fjögur stig í sex leikjum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.