Lið ársins hjá FIFA er ansi sóknarsinnað í ár en það er stillt upp í 3-3-4.
Evrópumeistararnir Gianluigi Donnarumma, Bonucci og Jorginho eru í liðinu. Það vekur athygli að markvörður ársins, Edouard Mendy er ekki í markinu.
Framlínan er baneitruð en þar eru Cristiano Ronaldo, Erling Haaland, Robert Lewandowski og Lionel Messi, spurning hvernig þessu liði myndi ganga í alvöru leik.
Lið ársins: Donnarumma, Alaba, Diaz, Bonucci, Jorginho, Kante, De Bruyne, Ronaldo, Haaland, Lewandowski, Messi
🏆 THIS is the 2021 Men’s FIFA FIFPRO #World11
— FIFPRO (@FIFPRO) January 17, 2022
By the players, for the players.@FIFAWorldCup pic.twitter.com/i0dYe7KUwI
Athugasemdir