Varnarmaðurinn Winston Reid hefur gengið í raðir Sporting Kansas City, sem leikur í MLS-deildinni, á láni frá West Ham.
Hinn 31 árs gamli Reid hefur glímt við erfið hnémeiðsli síðastliðin tvö ár. Hann hefur ekkert spilað í ensku úrvalsdeildinni síðustu tvö tímabil.
Hann kom til West Ham frá Midtjylland í Danmörku árið 2010 og hefur hann því verið á Englandi í tíu ár.
Hann mun núna prófa eitthvað annað og reyna fyrir sér í Bandaríkjunum. Kansas leikur sinn fyrsta leik á tímabilinu í MLS þann 1. mars næstkomandi gegn Vancouver Whitecaps.
First touches in the #SportingKC crest for @WinstonReid2.#SKCPreseason // @ChildrensMercy pic.twitter.com/EIxcxpKUXs
— Sporting KC (@SportingKC) February 15, 2020
Athugasemdir