Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   þri 17. mars 2020 13:00
Elvar Geir Magnússon
Mun City bjóða Cancelo í skiptum fyrir Skriniar?
Inter undirbýr tilboð í Joao Cancelo hjá Manchester City en portúgalska bakverðinum hefur gengið illa að aðlagast ensku úrvalsdeildinni.

Cancelo kom til City frá Juventus síðasta sumar en hefur aðeins spilað ellefu leiki í deildinni.

Calciomercato segir að Pep Guardiola hafi áhuga á að fá miðvörðinn Milan Skriniar til Manchester City. Rætt er um að hann bjóði Cancelo í skiptum fyrir Slóvakann.

Ljóst er að Manchester City þyrfti að borga með skiptunum ef af þeim myndi verða en Inter telur að Skriniar sé talsvert verðmætari en Cancelo.
Athugasemdir
banner