Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 17. mars 2021 20:40
Aksentije Milisic
Laporta við Messi: Ég elska þig og Barca elskar þig líka
Mynd: Getty Images
Joan Laporta, forseti Barcelona, er með skilaboð til Lionel Messi þar sem hann segist elska Messi og að félagið elski hann.

Laporta var kosinn forseti Barcelona fyrr í mánuðinum en hann var forseti Börsunga frá 2003 til 2010 og þekkir því stöðuna vel.

Framtíð Messi hjá Barcelona er í miklum vafa en samningur hans rennur út eftir tímabilið. Laporte hefur sent skilaboð til Messi og þá hefur hann talað mjög fallega um Argentínska snillinginn.

„Við ætlum að reyna sannfæra hann um að vera áfram því hann er besti leikmaður sögunnar. Fyrirgefðu mér þetta Leo, en ég elska þig og Barca elskar þig líka. Ef þessi leikvangurinn væri fullur, þá er ég viss um að þú gætir ekki farið," sagði forsetinn.

Leo Messi hefur verið hreint út sagt frábær hjá Barcelona eftir áramót en liðið er aftur komið í baráttuna um spænska titilinn.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner