Afturelding hefur ákveðið að leysa argentíska varnarmanninn Ivan Moran undan samningi, stuttu fyrir upphaf Inkasso-deildarinnar.
Þessi 26 ára gamli leikmaður samdi við Aftureldingu í mars. Hann hefur á ferli sínum lengst af leikið í heimalandi sínu Argentínu en hann hefur þó einnig leikið í Grikklandi og í úrvalsdeildinni í Gíbraltar.
Í tilkynningu frá Aftureldingu segir:
„Argentínski varnarmaðurinn Ivan Moran hefur verið leystur undan samningi og mun ekki leika með Aftureldingu í sumar. Ivan kom til félagsins í vetur en þótti ekki standast væntingar. Afturelding þakkar Ivan fyrir samstarfið og óskar honum alls hins besta í framtíðinni."
Afturelding hefur leik í Inkasso-deildinni 4. maí. Fyrsti leikur liðsins er gegn Þór á Akureyri.
Athugasemdir