Aston Villa fylgist með Mbaye - Coventry og Leeds berjast um Openda - Gordon á leið til Bayern - Vilja Trafford sem arftaka Martínez
Óskar Hrafn: Þú hefur margt fyrir þér í því
Stefán Árni: Unun að fá að deila velli með honum
Hemmi ósáttur: Brandari hvað Finnur og Ástbjörn komast upp með í 90 mínútur
Bryndís Rut hreinskilin eftir stórt tap: „Markmiðið er að halda okkur í deildinni“
Keflavík rúllaði yfir Tindastól – „Geggjað að taka svona sigur“
Hetjan Hallgrímur æfði ekkert í vikunni: Ákvað að svara þegar ég skoraði
Haddi: Róar taugarnar hjá mér
Siggi Höskulds lýsir vonbrigðunum: Nei það er ekki hægt
Gunnar Heiðar ósáttur eftir sigur: Er ekkert eðlilega óánægður með þetta
Nenad: Ég ætla ekki að tjá mig
Jóhann Birnir ósáttur með rauða spjaldið - „Fannst hann bara sækja brotið"
Venni: Ég var aldrei í rónni
Elfar Árni: Spennandi að sjá hvort einhver nýr verði á bekknum í næsta leik
Modoumatarr frá Stokkhólmi: Rólegt líf á Húsavík.
Maggi svekktur: Þeir eru með hörkuhóp
Davíð Smári: Svo sem hægt að kenna dómaranum um
Damir: Gekk betur þegar við föttuðum það
„Smá högg í vetur þegar ég var ein af þeim elstu 22 ára"
„Sigurmark í lokin gerir þetta ennþá sætara“
Mist lagði upp sigurmarkið - „Þetta var nákvæm hreinsun“
   mán 17. apríl 2023 22:32
Stefán Marteinn Ólafsson
Elísa Viðars: Búið að vera svolítið óheppilegar síðustu vikur
Kvenaboltinn
Elísa Viðarsdóttir fyrirliði Vals í viðtali eftir leikinn.
Elísa Viðarsdóttir fyrirliði Vals í viðtali eftir leikinn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það eru Stjörnukonur sem eru fyrstar til þess að hampa Svanfríðarbikarnum eða Meistarar meistaranna eins og leikurinn er einnig þekktur sem þar sem þær báru sigurorð af Val eftir vítaspyrnukeppni. 

Það var markalaust eftir venjulegan leiktíma en bæði lið börðust fram að síðustu mínútu en markið vildi þó ekki koma og því varð að grípa til vítaspyrnukeppni til að skera úr um sigurvegar þar sem Stjarnan hafði betur.


Lestu um leikinn: Valur 3 -  4 Stjarnan

„Þetta var bara leikur tveggja frábæra liða og bæði lið að sýna góða varnartakta og góða sóknartakta sömuleiðis en svona fer þetta stundum." Sagði Elísa Viðarsdóttir fyrirliði Vals eftir leikinn í kvöld. 

Það sem einkenndi leikinn var gríðarleg barátta, hjarta og vilji hjá báðum liðum og því var það nær synd að annað liðið skyldi þurfa að tapa hér í kvöld.

„Svona á þetta að vera þegar það er bikar undir þá á að vera harka, líf og fjör og mér fannst við bjóða uppá góðan leik í dag."

„Við ætliuðum okkur bikarinn í dag alveg klárt mál og við viljum vera að keppa um alla titla sem í boði eru og þessi féll þeirra megin í dag en við eigum tvo eftir ókláraða."

Eins og frægt er þá hefur ÍTF verið svolítið á milli tannana á fólki og þá sérstaklega þar sem mörg vafaatriði hafa fallið gegn knattspyrnu kvenna og mismunandi skoðanir komið í ljós.

„Þetta er kannski bara búið að vera svolítið óheppilegar síðustu vikur og við erum búnar að láta óánægju okkar í ljós en við ætlum að vona að nú liggi leiðin bara upp á við og við séum öll að vinna að því að bæta Íslenskan fótbolta og ég er alveg viss um það að nú tökum við höndum saman og gerum þetta saman sem heild."

Nánar er rætt við Elísu Viðarsdóttur í spilaranum hér fyrir ofan.


Slapp
banner
banner
banner