Óvissa með Rashford - Gordon orðaður við Bayern og Arsenal - Mac Allister og Gomez orðaðir við brottför
   fös 17. apríl 2026 16:45
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hin hliðin - Ingi Sigurðsson (Grindavík)
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gott að vera með Arnóri Gauta í liði, verra að vera á móti honum.
Gott að vera með Arnóri Gauta í liði, verra að vera á móti honum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrirmyndin.
Fyrirmyndin.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Ég tek fimmta vítið, tryggi sigur og ríf mig úr að ofan
,,Ég tek fimmta vítið, tryggi sigur og ríf mig úr að ofan
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Dr. Phil, getur þú aðstoðað?
Dr. Phil, getur þú aðstoðað?
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hvernig hefuru það?
Hvernig hefuru það?
Mynd: EPA
Má mæta, hafa félagaskipti og elda lasagna.
Má mæta, hafa félagaskipti og elda lasagna.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Viktor Guðberg litríkur í klefanum.
Viktor Guðberg litríkur í klefanum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Huggulegur og velkominn í lasagnagerð.
Huggulegur og velkominn í lasagnagerð.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ingi Þór var í vetur keyptur til Grindavíkur frá uppeldisfélaginu ÍA. Hann lék á láni hjá Grindavík á síðasta tímabili. Hann er miðjumaður sem skoraði þrjú mörk í Lengjudeildinni í fyrra.

Ingi lék sína fyrstu leiki 2020 með ÍA en ári á undan hafði hann spilað tvo leiki með U17 ára landsliðinu. Á ferlinum hefur hann spilað 84 leiki samkvæmt Transfermarkt og skorað tólf mörk. Í dag sýnir Ingi á sér hina hliðina.

Fullt nafn: Ingi Þór Sigurðsson

Gælunafn: Isig eða bara “i” í Grindavík

Aldur: 22 ára

Hjúskaparstaða: Lausu

Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki og er eitthvað minnisstætt úr leiknum: Fyrsti leikur í deild var 2020 á móti KA upp á skaga, ég snerti ekki boltann en mig minnir að Stefán Teitur hafi átt einhvern screamer

Uppáhalds drykkur: Nocco

Uppáhalds matsölustaður: Sjómannastofan VÖR eða Papas eru geiturnar í Grindavík

Uppáhalds tölvuleikur: Einmitt núna er ég að sækja svona 3 wins á dag í Fortnite

Áttu hlutabréf eða rafmynt: nei er ekki komin þangað ennþá

Uppáhalds sjónvarpsþáttur: horfi ekki mikið á þætti en outer banks er góðir

Uppáhalds tónlistarmaður: Birnir

Uppáhalds hlaðvarp: hef ekki einbeitinguna í það að hlusta á podcast þannig ég verð að segja ekkert

Uppáhalds samfélagsmiðill: ég skrolla mikið á instagram reels

Fyrsta síðan sem þú ferð á þegar þú opnar netið: líður eins og það sé vitlaust svar ef ég segi ekki .net þannig þið fáið þetta

Fyndnasti Íslendingurinn: Stefán Kaprasíus(ekki fake nafn) vinnufélagi, einn af þessum gaurum sem voru sturlaðir í bolta en óheppin með meiðsli og skipti yfir í bjórinn þá

Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: Tu matt saekja pontunina kl:21:27 i Háholt 14 Kvedja Domino's Pizza. Þeir hafa sent þetta á vitlaust númer líklegast

Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: Hilmar Elís verður ekki sáttur núna en ég myndi ekki vilja spila með Skallagrím

Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Gylfi Sig

Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Siggi Jóns, Ray Anthony, Halli Hróðmars og kóngurinn Marko Valdimar Jankovic eru þeir sem hafa hjálpað mér mest sem leikmanni

Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Ég þoldi ekki FH upp alla yngri flokkana og þar var minn maður Arnór Gauti einn sá leiðinlegasti, er þakklátur að hafa hann í mínu liði í dag

Hver var fyrirmyndin þín í­ æsku: stóri bróðir var og er mikil fyrirmynd

Sætasti sigurinn: Það er líklegast þegar ÍA hélt sér uppi með rosalegum leik 2021 í Keflavík, gerði ekki mikið sjálfur en ég sat á bekknum og þetta var rosalegt

Mestu vonbrigðin: Annað hvort falla með ÍA 2022 eða tapa bikarúrslitunum 2021

Uppáhalds lið í enska: Manchester United

Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Ég myndi fá Ármann og Breka aftur inn í Grindavík

Efnilegasti fótboltamaður/kona landsins: efnilegasta kona er Sunna Rún Sigurðardóttir og efnilegasti er Mikeal Máni Þorfinnsson

Fallegasti fótboltamaðurinn á Íslandi: Þetta er á milli Breka Hermanns þegar hann er ný búin í strípum og Kristófers Mána með fresh fade

Fallegasta fótboltakonan á Íslandi: Sunna Rún Sigurðardóttir, mamma sagði mér að svara þessu ég hefði viljað segja annað

Besti fótboltamaðurinn frá upphafi: Cristiano Ronaldo by a mile

Ein regla í fótbolta sem þú myndir breyta: Ef boltinn fer í hendina á leikmanni er það hendi bara, skil ekki lengur hvenær er hendi og hvenær ekki

Uppáhalds staður á Íslandi: Gott veður og golfvöllur þá er mér sama hvar ég er

Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Í bikarleiknum á móti Keflavík þá sagði ég við Ray að ég ætli að taka fimmta vítið en þá kemur frekjan Damir og segist ætla taka vítið þar sem hann sé búin að sjá fyrir sér að skora winnerinn og rífa sig úr að ofan. Það var nett þegar það gerðist svo hann má eiga það.

Ertu með einhverja hjátrú tengda fótbolta: Stíg alltaf með vinstri löppina fyrst inn á völlinn

Fyrir utan fótbolta, fylgist þú með öðrum íþróttum: Ég fylgist með mjög miklu, NFL, Karfan, Golfið, Formúlan

Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Nike Phantom GT

Í hverju varstu/ertu lélegastur í­ skóla: Ég sökkaði í sundi og var eini sem kunni ekki að stinga sér

Vandræðalegasta augnablik: Ég man ekki eftir neinu góðu momenti

Hvaða þremur leikmönnum byðir þú í mat og af hverju: Ég myndi fá Breka og Ármann til þess að koma og elda lasagna fyrir mig og henda þeim síðan út. Svo tek ég Gísla Laxdal og Steinar Þorsteins fyrir stemningu og svo bæti ég Alberti Hafsteins til þess að halda umræðunni faglegri.

Bestur/best í klefanum og af hverju: Valur Hákonar og Viktor Guðberg eru litríkir

Hvern í liðinu þínu myndirðu velja til að taka þátt í sjónvarpsþáttaröð: Ég myndi senda Stefán Jón Friðriksson í D.R Phil. Það þarf sérfræðing til þess að greina þann mann.

Sturluð staðreynd um sjálfan þig: ég er svona topp 10 besti píanó spilari landsins

Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Hjörvar er alls ekki jafn leiðinlegur og hann lítur út fyrir að vera

Hverju laugstu síðast: svarinu hérna fyrir ofan

Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: upphitun er drepleiðinleg

Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er: Hver yrði spurningin og hvern myndiru spyrja: Ég myndi spyrja Ronaldo hvernig hann hefði það bara

Einhver skilaboð til stuðningsmanna fyrir sumarið: Fjölmenna á völlinn og endurvekja stemminguna í kringum fótboltann í Grindavík!
Slapp
banner