Óvissa með Rashford - Gordon orðaður við Bayern og Arsenal - Mac Allister og Gomez orðaðir við brottför
banner
laugardagur 18. apríl
Undankeppni HM kvenna
þriðjudagur 14. apríl
Undankeppni HM kvenna
laugardagur 11. apríl
Mjólkurbikar karla
föstudagur 10. apríl
Besta deildin
fimmtudagur 2. apríl
Meistarakeppni kvenna
þriðjudagur 31. mars
Vináttulandsleikur
mánudagur 30. mars
Undankeppni EM U21
sunnudagur 29. mars
Mjólkurbikar karla
Meistarakeppni karla
föstudagur 27. mars
Kjarnafæðimótið Úrslit
fimmtudagur 26. mars
Mjólkurbikar karla
Undankeppni EM U21
laugardagur 21. mars
Bose-bikarinn Úrslit
Úrslit Lengjubikarsins
miðvikudagur 18. mars
Úrslit Þungavigtarbikarsins
þriðjudagur 17. mars
Undanúrslit Lengjubikarsins
laugardagur 14. mars
laugardagur 7. mars
Undankeppni HM kvenna
þriðjudagur 3. mars
fimmtudagur 26. febrúar
Vináttulandsleikur
miðvikudagur 25. febrúar
Úrslitaleikur Reykjavíkurmótsins
miðvikudagur 18. febrúar
Evrópubikarinn - 8-liða úrslit
laugardagur 14. febrúar
Lengjubikar karla - A-deild, riðill 1
miðvikudagur 11. febrúar
Evrópubikarinn - 8-liða úrslit
fimmtudagur 18. desember
Sambandsdeildin
fimmtudagur 27. nóvember
miðvikudagur 19. nóvember
Evrópubikarinn - 16-liða úrslit
sunnudagur 16. nóvember
Undankeppni HM
fimmtudagur 13. nóvember
Undankeppni EM U21
Undankeppni HM
miðvikudagur 12. nóvember
Evrópubikarinn - 16-liða úrslit
fimmtudagur 6. nóvember
Sambandsdeildin
miðvikudagur 29. október
Þjóðadeild kvenna - Umspil
sunnudagur 26. október
Besta-deild karla - Efri hluti
föstudagur 24. október
Þjóðadeild kvenna - Umspil
fimmtudagur 23. október
Sambandsdeildin
miðvikudagur 22. október
Evrópukeppni unglingaliða
mánudagur 20. október
Besta-deild karla - Efri hluti
miðvikudagur 15. október
Evrópubikar kvenna
þriðjudagur 14. október
Undankeppni EM U21
mánudagur 13. október
Undankeppni HM
laugardagur 11. október
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
föstudagur 10. október
Undankeppni HM
Undankeppni EM U21
fimmtudagur 9. október
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
miðvikudagur 8. október
Evrópubikar kvenna
mánudagur 6. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
sunnudagur 5. október
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
laugardagur 4. október
Besta-deild karla - Efri hluti
föstudagur 17. apríl
Championship
Blackburn - Coventry - 19:00
1. deild
Lens - Toulouse - 18:45
Bundesligan
St. Pauli - Köln - 18:30
Serie A
Sassuolo 2 - 1 Como
Inter - Cagliari - 18:45
fös 17.apr 2026 16:30 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magazine image

Spá þjálfara og fyrirliða fyrir Lengjudeildina: 7. sæti

Fótbolti.net kynnir liðin sem leika í Lengjudeildinni í sumar eitt af öðru eftir því hvar þeim er spáð. Við fengum alla fyrirliða og þjálfara í deildinni til að spá fyrir sumarið og fengu liðin stig frá 1-11 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði. Í sjöunda sæti er Grindavík.

Grindavík er spáð sjöunda sæti.
Grindavík er spáð sjöunda sæti.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ray tók við Grindavík í vetur.
Ray tók við Grindavík í vetur.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Damir verður í lykilhlutverki.
Damir verður í lykilhlutverki.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Rafael Victor getur skorað í þessari deild.
Rafael Victor getur skorað í þessari deild.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Christian er spennandi bakvörður.
Christian er spennandi bakvörður.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hjörvar Daði er mættur í markið.
Hjörvar Daði er mættur í markið.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ingi Þór er sprækur á kantinum.
Ingi Þór er sprækur á kantinum.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnór Gauti kemur til með að spila við hlið Damir í vörninni.
Arnór Gauti kemur til með að spila við hlið Damir í vörninni.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Adam Árni fór í Þrótt.
Adam Árni fór í Þrótt.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Rúnar Ingi Eysteinsson lék vel í 2. deild í fyrra.
Rúnar Ingi Eysteinsson lék vel í 2. deild í fyrra.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hvað gerir Grindavík í sumar?
Hvað gerir Grindavík í sumar?
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. Grindavík, 110 stig
8. ÍR, 104 stig
9. Leiknir R., 95 stig
10. Grótta, 68 stig
11. Ægir, 51 stig
12. Völsungur, 15 stig

7. Grindavík
Síðasta tímabil var nokkuð bras hjá Grindvíkingum og á köflum leit út fyrir að þeir gætu lent í vandræðum, en liðið sýndi karakter þegar mest á reyndi og tryggði sér áframhaldandi sæti í deildinni. Það eitt og sér getur reynst dýrmætt veganesti inn í nýtt tímabil. Það sem stendur þó upp úr hjá Grindavík er ekki eingöngu það sem gerist inni á vellinum, heldur hvernig félagið hefur tekist á við aðstæður utan hans. Þrátt fyrir jarðhræringar og óvissu síðustu ár hefur tekist að halda úti liði og halda starfinu gangandi, sem segir sitt um styrk og seiglu samfélagsins. Það er eitthvað sem getur skapað sterka liðsheild og ákveðinn baráttuvilja sem erfitt er að mæla á blaði. Það er afar jákvætt að Grindavík muni spila á heimavelli sínum annað sumarið í röð. Það gefur liðinu ákveðinn stöðugleika og tækifæri til að byggja upp tengingu við stuðningsmenn og samfélagið. Ef þeim tekst að skapa alvöru félagsanda í kringum liðið og nýta heimavöllinn sem styrk gæti Grindavík vel farið fram úr spám, en lykilatriðið verður að ná stöðugleika í frammistöðu frá fyrsta leik.

Þjálfarinn: Ray Anthony Jónsson sneri heim og tók við Grindavík í vetur. Haraldur Árni Hróðmarsson byrjaði síðasta tímabil sem þjálfari liðsins en var látinn fara í lok ágústmánaðar þar sem liðið var í fallbaráttu. Ray Anthony spilaði með Grindavik frá 1998 til 2012. Hann spilaði tvo landsleiki fyrir U21 landslið Íslands og 31 A-landsleik fyrir hönd Filippseyja. Hann þjálfaði kvennalið Grindavíkur frá 2017-2020 og Reyni Sandgerði frá 2022 en liðið hafnaði í 5. sæti 3. deildarinnar síðasta sumar. Það má svo sannarlega segja að Ray sé mættur heim en hann er mikill Grindvíkingur.

Álit Badda
Fótboltaþjálfarinn Baldvin Már Borgarsson er sérfræðingur Fótbolta.net fyrir Lengjudeildina. Hann rýnir í öll liðin fyrir tímabilið sem er framundan.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ég er pínu efins
„Grindjánar eru fluttir heim að fullu og byrjaðir að mynda lið sem öskrar einhvern metnað á mann, þar ber helst að nefna Damir, Rafael Victor og svo verð ég að nefna Hjörvar Daða svo hann fari ekki í fýlu. Hann er flottur markmaður í þessa deild. Hvort þessar styrkingar séu nóg fyrir Ray Anthony og hans her þarf að fá að koma í ljós, ég er pínu efins ef ég á að vera alveg heiðarlegur."

„Ég þyrfti að fá eitthvað aðeins meira frá Grindavík, 1-2 statement signing til þess að sjá þá djöflast eitthvað í kringum þetta playoffs, en þessi skrif eru líka þeirra bensín á bálið og hvað er betra en að sokka þessa svokölluðu?"


Lykilmenn: Damir Muminovic og Rafael Victor
Grindavík hefur gert nokkuð stóra hluti á markaðnum í vetur og þar ber það hæst að Damir Muminovic skrifaði undir samning við félagið. Damir er 35 ára miðvörður sem tvisvar hefur orðið Íslandsmeistari með Breiðabliki. Hann hefur í mörg, mörg ár verið einn besti varnarmaður Bestu deildarinnar og mun gefa Grindavíkurliðinu gríðarlega mikið í sumar bæði innan sem utan vallar. Þá samdi Grindavík við sóknarmanninn Rafael Victor á dögunum. Rafael Victor er 30 ára Portúgali sem kom fyrst til Íslands tímabilið 2019 þegar hann lék með Þrótti. Hann lék svo með Hetti 2022, Njarðvík 2023 og svo Þór 2024 og 2025. Hann var mikið meiddur í fyrra en hann getur svo sannarlega skorað í þessari deild.

Gaman að fylgjast með: Christian Bjarmi Alexandersson
Christian Bjarmi er efnilegur vinstri bakvörður sem fæddur er árið 2007. Hann steig sín fyrstu skref í meistaraflokki 2024. Þá kom hann við sögu í 18 deildarleikjum og einum bikarleik. Á síðasta tímabili urðu leikirnir einungis átta talsins, en hann handleggsbrotnaði nokkuð snemma síðasta sumar og missti af mörgum leikjum. Það hefur verið áhugi á Cristian úr Bestu deildinni í vetur, þar á meðal frá ÍBV, Breiðabliki og Val og þess vegna er hann leikmaður til að fylgjast með í sumar.

Komnir:
Damir Muminovic frá Breiðabliki
Ingi Þór Sigurðsson keyptur frá ÍA (var á láni)
Hjörvar Daði Arnarsson frá ÍBV
Rafael Victor frá Þór
Robert Blakala frá Selfossi
Stefán Jón Friðriksson frá Keflavík
Heiðar Snær Ragnarsson frá KFA
Rúnar Ingi Eysteinsson frá Þrótti V. (var á láni frá Keflavík)
Valur Þór Hákonarson frá Víði (var á láni frá Keflavík)

Farnir:
Adam Árni Róbertsson í Þrótt R.
Ármann Ingi Finnbogason í Víking (var á láni frá ÍA)
Rúrik Gunnarsson í Leikni (var á láni frá HK)
Breki Þór Hermannsson í Vestra (var á láni frá ÍA)
Árni Salvar Heimisson (var á láni frá ÍA)
Terry Lartey-Sanniez til Hollands
Kristófer Leví Sigtryggsson í Fylki
Matias Niemela (var á láni frá Vestra)
Dennis Nieblas Moreno til Gíbraltar
Manuel Gavilan Morales
Darren Sidoel



Fyrstu þrír leikir Grindavíkur:
25. apríl, Vestri - Grindavík (Kerecisvöllurinn)
1. maí, Grindavík - Njarðvík (Stakkavíkurvöllur)
8. maí, ÍR - Grindavík (AutoCenter-völlurinn)
banner