Þrátt fyrir að Alisson hafi skorað dramatískt sigurmark Liverpool gegn West Brom með frábærum skalla þá er hann ekki markvörðurinn í úrvalsliði vikunnar sem Garth Crooks hjá BBC setti saman. Í rammanum er Kasper Schmeichel sem varði mark Leicester sem vann bikarmeistaratitilinn í fyrsta sinn í sögu félagsins með því að leggja Chelsea 1-0 í úrslitaleik á Wembley.
Manchester City vann 4-3 sigur gegn Newcastle í ótrúlegum leik, Tottenham lagði Úlfana, Crystal Palace kom til baka og lagði Aston Villa í skemmtilegum leik og Leeds rúllaði yfir Burnley 4-0. Southampton lagði Fulham, Sheffield United vann Everton og jafntefli varð niðurstaðan í leik Brighton og West Ham.
Markvörður: Kasper Schmeichel (Leicester City) - Fyrirliðinn átti tvær stórkostlegar vörslur þegar Leicester hampaði bikarnum.
Varnarmaður: Trent Alexander-Arnold (Liverpool) - Á stórhættulegar spyrnur og það var hornspyrna hans sem fann höfuðið á Alisson.
Varnarmaður: Caglar Söyuncu (Leicester City) - Tyrkneski varnarmaðurinn var framúrskarandi á Wembley.
Miðjumaður: James Ward-Prowse (Southampton) - Besti leikmaður Dýrlinganna á tímabilinu var feikilega skapandi um helgina.
Miðjumaður: Youri Tielemans (Leicester City) - Skoraði sigurmarkið í bikarúrslitaleiknum og það var af dýrari gerðinni.
Athugasemdir