Fotbolti.net
17.05.23 - 17:30
Elvar Geir Magnússon

Ashley Barnes til Norwich (Staðfest)

Barnes kveður Burnley.

Barnes kveður Burnley.

Canon

Mynd: EPA

Frágengið er að Sóknarmaðurinn reynslumikli Ashley Barnes mun verða leikmaður Norwich City þegar samningur hans við Burnley rennur út í júní.

Barnes er 33 ára og gekk í raðir Burnley í janúar 2014 frá Brighton. Hann hjálpaði Burnley þrívegis að komast upp í efstu deild.
Á þessu tímabili skoraði hann sjö mörk en hann var meðal markaskorara þegar liðið vann Middlesbrough og tryggði sér úrvalsdeildarsæti.

„Ég hef eignast vini út lífsleiðina hjá Burnley. Takk til allra sem hafa aðstoða mig. Burnley mun alltaf eiga stað í mínu hjarta," segir Barnes.

Norwich hafnaði í þrettánda sæti Championship-deildarinnar, ensku B-deildarinnar, á tímabilinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.