Jói Berg: Frábært að sjá stuðningsmenn mæta og það gefur okkur mikið

Jóhann Berg Guðmundsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jóhann Berg Guðmundsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ísland þurfti að gera breytingu fyrir þegar Aron Einar Gunnarsson meiddist í upphitun og var það mikill missir fyrir okkur Íslendinga.
„Mikill missir að missa Aron Einar rétt fyrir leik, fyrirliðin og akkerið á miðjunni en mér fannst Gulli koma gríðarlega vel inn á miðjunni og Valgeir í bakvörðinn þannig mér fannst við vera bara nokkuð solid en alltaf vont að missa fyrirliðan rétt fyrir leik."
Laugardalsvöllur var nánast uppseldur í kvöld og Jóhann Berg Guðmundsson segir að það hafi gefið liðinu mikið og að stuðningurinn þurfi að vera jafn góður gegn Portúgal á þriðjudaginn.
„Stemmingin var frábær og við þurfum að gera það aftur á þriðjudaginn til að eiga möguleika gegn Portúgal, það verður gríðarlega erfiður leikur en auðvitað bara frábært að sjá stuðningsmenn mæta og styðja okkur og það gefur okkur mikið."
Viðtalið í heild sinni við Jóhann Berg má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.



