Fotbolti.net
17.07.13 - 12:00
Daníel Freyr Jónsson
Ítalska deildin

Kevin Strootman orðinn leikmaður Roma (Staðfest)

Kevin Strootman.

Kevin Strootman.

Canon

Mynd: Getty Images

Hollendingurinn Kevin Strootman er genginn í raðir ítalska félagsins Roma frá PSV í heimalandinu.

Gengið var frá samningum í morgun, en Strootman lenti á Ítalíu í gær og gekkst undir læknisskoðun. Kaupverðið er talið nema allt að 17 milljónum evra.
,,Ég er mjög ánægður. Ég er loksins kominn hingað og ég er loksins orðinn leikmaður Roma,\" sagði Strootman eftir að hafa skrifað undir fjögurra ára samning.

,,Samningaviðræðurnar tóku dálítinn tíma, en allt gekk á endanum upp og var leyst á jákvæðan hátt.\"

Strootman er 23 ára gamall miðjumaður. Hann lék með PSV í tvö ár, en áður var hann til mála hjá FC Utrecht.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.