17.07.13 - 06:00
Daníel Freyr Jónsson
Sebastian Squillaci til SC Bastia (Staðfest)

Sebastian Squillaci.

Mynd: Getty Images

Sebastian Squillaci.

Mynd: Getty Images
Franski varnarmaðurinn Sebastian Squillaci er genginn í raðir Bastia Í Frakklandi á frjálsri sölu frá Arsenal.
Squillaci lék með Arsenal í þrjú ár, en samningur hans rann út við lok síðasta tímabils. Áður lék hann með Sevilla, Lyon og og Monaco.
Hann náði aldrei að festa sæti sitt í byrjunarliðinu á Emirates vellinum á þessum þremur árum og lék til að mynda einungis einn úrvalsdeildarleik á síðustu tveimur árum. Meiðsli settu þó stór strik í reikninginn.
Þessi 32 ára gamli varnarmaður skrifaði undir eins árs samning hjá Bastia.