Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 17. júlí 2021 23:00
Victor Pálsson
Aldrei séð Messi eins ánægðan
Mynd: Getty Images
Lionel Messi hefur aldrei verið ánægðari ef þú spyrð landa hans í argentínska landsliðinu, Leandro Paredes.

Messi fagnaði nýlega sínum fyrsta titli með landsliðinu er liðið vann Brasilíu í úrslitaleik Copa America, 1-0.

Margir hafa beðið eftir því að Messi myndi vinna sinn fyrsta landsliðstitil og það hófst loksins í þessari keppni.

„Þetta snýst ekki bara um okkur heldur 45 milljónir Argentínumanna sem vildu sjá Leo vinna titil með landsliðinu," sagði Paredes.

„Ég hef aldrei séð Messi eins ánægðan. Hann hefur notið þess að vera hér með okkur. Þetta var eins og útskriftaferð þar sem við skemmtum okkur konunglega."

„Við unnum því við sigruðum okkar leikir og komumst í úrslitin. Þetta var draumur að verða að veruleika."
Athugasemdir
banner
banner
banner