Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 17. júlí 2022 12:45
Jóhann Þór Hólmgrímsson
De Jong tilbúinn að fara frá Barcelona
De Ligt og De Jong
De Ligt og De Jong
Mynd: Getty Images

Frenkie De Jong er sterklega orðaður við Manchester United þessa dagana.


Samkvæmt erlendum fjölmiðlum hefur Barcelona samþykkt tilboð frá enska félaginu en De Jong hefur ekki áhuga á að fara til United. Erik Ten Hag fyrrum stjori De Jong hjá Ajax og núverandi stjóri United ætlar ekki að gefast upp.

Mirror greinir frá því að De Jong sé tilbúinn að fara frá Barcelona en kjósi frekar að fara til Bayern.

Bayern er á eftir Matthijs De Ligt varnarmanni Juventus og fyrrum samherja De Jong hjá Ajax.



Athugasemdir
banner
banner