Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 17. júlí 2022 19:21
Brynjar Ingi Erluson
Láki hafnar ásökunum um kynþáttafordóma - „Sannleikurinn er jú oft sár eins og við þekkjum"
Þorlákur Árnason, þjálfari Þórs
Þorlákur Árnason, þjálfari Þórs
Mynd: Palli Jóh / thorsport
Jordan Damachoua
Jordan Damachoua
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Thorsport/Palli Jó
Jordan Damachoua, fyrrum leikmaður Þórs á Akureyi, ásakaði Þorlák Árnason um kynþáttafordóma í garð hans í viðtali við Fótbolta.net í dag en þjálfarinn hefur nú svarað fyrir þessar ásakanir og neitar allri sök.

Damak, eins og hann er kallaður, flutti til Íslands fyrir fjórum árum og gerði flotta hluti með KF og Kórdrengjum áður en hann hélt til Frakklands.

Hann sneri aftur til Íslands fyrr á árinu til að ganga til liðs við Þór á Akureyri. Þar fékk hann ekki að spila mikið; hann kom bara við sögu í einum deildarleik á tímabilinu áður en hann samdi aftur við KF.

Talaði hann þar um að hann hafi orðið fyrir kynþáttafordómum af hálfu Þorláks.

Sjá einnig:
Sakar Þorlák um rasisma - „Leikmennirnir voru í sjokki"

„Á æfingasvæðinu og á fundum þá gerði hann grín að Afríku og gagnvart mér. Hann talaði um að ég væri afslappaður eða hægur eins og aðrir Afríkubúar. Á einum fundinum bendi hann á brotna hurð og sagði: 'Damak, þessi hurð er eins og hurðirnar í Afríku'. Því hurðin var brotin. Hann sagði þetta fyrir framan alla og leikmennirnir voru í sjokki. Hann talaði svo um að ég væri þannig manneskja sem væri líkleg til þess að stela. Ég sagði við hann að ég þekki fólk sem myndi slá hann fyrir svona ummæli," sagði hann meðal annars í viðtalinu við Fótbolta.net í dag.

Þorlákur svarar fyrir sig

Þorlákur segir þetta ekki eiga við rök að styðjast í færslu sem hann birtir á Facebook-síðu sinni í dag.

Bendir hann á að leikmaðurinn hafi meðal annars brotið siðareglur Þórs og síðar aðvaraður fyrir samskonar atvik og að það hafi skapað vantraust milli hans og leikmannsins og milli leikmannsins og stjórnar.

„Ég get ímyndað mér að fólk sem aðhyllist einhvers konar rasisma yrði reitt ef að það yrði sakað um slíkt. Sannleikurinn er jú oft sár eins og við þekkjum."

„En allir sem þekkja mig og mína hugmyndafræði vita að ég er ekki rasisti. Ég er ofboðslega forvitinn um ólíka menningaheima og vegna þess starfaði í Asíu í 2 ½ ár og hef einnig tekið að mér verkefni í Afríku og öðrum fjarlægum heimsálfum."

„Ástæða þess að nokkrir af þeim erlendu leikmönnum sem hafa verið í Þór sumar, hafa ekki spilað meira en raun er hefur ekkert með þjóðerni að gera. Félagið ákvað að hefja uppbyggingu á nýju liði sem er ungt að árum og ætlunin var að fá öfluga aðkomumenn til að gera liðið sterkara. Sumir af þessum aðkomumenn hafa styrkt liðið og aðrir ekki eins og gengur og gerist."

„Af hverju ætti þjálfari að sækja leikmenn frá ólíkum menningarheimum ef að viðkomandi aðili bæri ekki virðingu fyrir þeirri menningu?"

„Það er gríðarlega alvarlegt að ásaka aðra manneskju um rasisma.Ef það væri eitthvað sannleikskorn í því þá myndi ég sennilega taka því ílla. "

„Staðreyndin er sú að í nútíma þjóðfélagi þá verða þjálfarar, kennarar og aðrir leiðbeinendur sífellt fyrir aðdróttunum þegar taka þarf á óæskilegri hegðun skjólstæðinga. Þetta hefur orðið til þess að þessir starfshópar þora vart að tjá sig á hættu á að orð þeirra sé mistúlkuð og notuð gegn þeim."

„Umræddur leikmaður var sektaður fyrir að brjóta siðareglur Þórs, hann var síðar aðvaraður aftur fyrir svipað atvik. Þetta varð til þess að það skapaðist vantraust bæði á milli leikmanns og þjálfara og leikmanns og félagsins. Geta leikmannsins hefur aldrei verið dreginn í efa."

„Ég vil óska Jordan Damachoua alls hins besta í framtíðinni í nýju félagi,"
sagði Þorlákur um málið.
Athugasemdir
banner
banner