„Við erum búnir að horfa á hann nokkrum sinnum," sagði Halldór Árnason og brosti þegar hann var spurður út í fyrri leikinn gegn Shamrock Rovers. Halldór er aðstoðarmaður Óskars Hrafns Þorvaldssonar hjá Breiðabliki en Blikar undirbúa sig nú fyrir seinni leikinn gegn Shamrock í forkeppni Meistaradeildarinnar.
Breiðablik vann fyrri leikinn og leiðir 1-0 fyrir seinni leikinn sem fram fer á Kópavogsvelli annað kvöld.
Breiðablik vann fyrri leikinn og leiðir 1-0 fyrir seinni leikinn sem fram fer á Kópavogsvelli annað kvöld.
„Við gerðum margt vel, stýrum leiknum vel, höldum vel í boltann, en missum kannski aðeins tökin í síðari hálfleik. Við vorum stundum að flýta okkur of mikið, stundum að reyna aðeins of erfiðari sendingar. Þegar sjálfstraustið fór þá fórum við líka að gera einföldu hlutina illa. Það þarf aðeins að slípa til smáatriði og reyna vera ennþá betri í því sem við gerðum vel í fyrri hálfleiknum."
„Jú, en það var langt frá því leikplanið. Við skoruðum seint í fyrri hálfleiknum eftir að hafa fengið marga góða sénsa. Við förum inn í hálfleikinn og ætlum svo sannarlega að keyra áfram, en þeir breyta sínum leikstíl og voru beinskeyttari gegn okkur. Þá er oft erfitt að grípa inn í. Mér fannst við gera hrikalega vel með skiptingum um miðbik seinni hálfleiks, fannst við ná tökum á leiknum aftur og svo 'grænduðum' við út síðustu mínúturnar. Stundum er þér bara þrýst til baka og þarft að klára leikina með góðum varnarleik og við gerðum það. En það er ekki leikplanið á morgun."
„Við erum ánægðastir með að hafa verið trúir okkur sjálfum, verið hugrakkir og farið út og þorað að spila okkar leik. Það er það mikilvægasta og hefur skilað okkur góðum árangri í Evrópu til þessa."
„Hugrekki og trú," sagði Halldór um einkenni sem ætti að skína hjá Breiðabliki á morgun.
„Ég held það sé fátt súrara en það að fara úr því sem þú trúir á og hefur gert og fara gera eitthvað annað og svo kannski ná ekki úrslitunum. Við erum auðvitað klárir með plan B varðandi varnarleik í ákveðnum stöðum, en við þurfum að vera það sem við höfum verið síðustu ár og hefur komið okkur á þennan stað."
Dóri talar um gluggann og möguleikann á því að Breiðablik fái inn sóknarmann. Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum efst.
„Ég býst við fullum velli, þvílíkri stemningu, mikið undir fyrir bæði lið, að einhverju leyti taktískri skák en leikurinn gæti orðið mjög skemmtilegur og mikil barátta. Vonandi verður tempóið hátt og leikurinn frábær."
Sigur eða jafntefli á morgun þýðir að Breiðablik eru sigri í einu einvígi frá riðlakeppni Evrópu. Eru Blikar mikið að hugsa um það?
„Þú veist af því að þetta er þarna einhversstaðar og mikið talað um það. Það þýðir samt ekkert að fara hugsa um það, eiginlega dauðadómur að plana langt fram í tímann. Við vitum hvað er í húfi en fókusinn þarf að vera á morgundaginn og ekkert annað."
Er leikurinn á morgun stærsti leikur Breiðabliks undir stjórn ykkar Óskars?
„Klárlega með þeim stærri já, þeir hafa verið nokkrir stórir í gegnum tíðina þannig lagað en þessi er auðvitað mjög stór."
Gervigrasið ætti að hjálpa
Hjálpar gervigrasið?
„Við höfum átt marga af okkar allrabestu leikjum hérna á Kópavogsvelli - sléttum gervigrasvelli. Þeir eru ekkert vanir gervigrasinu, held það sé eitt lið í Írlandi sem spilar á gervigrasi. Auðvitað hjálpar það eitthvað," sagði Dóri að lokum.
Leikurinn hefst klukkan 19:15 á morgun, verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og í beinni textalýsingu á Fótbolta.net.
Athugasemdir