Sambandið stendur með Tuchel sem fær gagnrýni úr öllum áttum

England mun leika um þriðja sætið á HM.

Mynd: EPA

Mynd: EPA

England mun leika um þriðja sætið á HM.

Mynd: EPA
Thomas Tuchel landsliðsþjálfari Englands fær gríðarlega gagnrýni úr öllum áttum í enskum fjölmiðlum eftir tap liðsins gegn Argentínu í undanúrslitum HM í gær.
Enska liðið var yfir í leiknum en Argentína kom til baka og vann 2-1 sigur eftir að Tuchel skipti yfir í mjög varnarsinnað kerfi og setti fleiri varnarmenn inn á völlinn.

TENGT EFNI
„Þjálffræðilegt stórslys“ - Sutton vill Tuchel burt
Tuchel var ráðinn landsliðsþjálfari í nóvember 2024 og talið að hann væri með taktíska kunnáttu til að taka liðið lengrta en Gareth Southgate hafði náð með það.
Neikvætt upplegg Þjóðverjans hefur verið haðrlega gagnrýnt en hann er með samning til 2028. Stefnt er á að hann stýri Englandi á heimavelli á EM það ár.
AP fréttastofan segir Tuchel hafa áframhaldandi stuðning frá stjórn FA, enska fótboltasambandsins og verði áfram með stjórnartaumana.
„Við fórum í undanúrslit, við verðum að halda okkur við Tuchel. Það þýðir ekki að skipta sífellt um þjálfara," segir Peder Reid, fyrrum landsliðsmaður Englands, en hann er einn af fáum sparkspekingum á Bretlandi sem virðist styðja Tuchel eftir tapið í gær.
Henry Winter, einn virtasti blaðamaður Englands, gagnrýnir Tuchel harðlega.
„Ef við æsumst ekki upp þegar svona gerist, hvenær eigum við þá að gera það? Við eigum að reiðast yfir svona stöðu, þetta er til skammar. Ég vona að það séu einhverjir innan enska sambandsins sem munu krefjast svara frá honum. Þegar hann var hjá félagsliðum áður lenti hann oft í útistöðum við yfirmenn sína. Ég held að enginn hjá sambandinu muni ganga að Tuchel; líklega er besti leikmaður Englands, Jude Bellingham, sá eini sem hefur kjarkinn til þess," segir Winter.