Fotbolti.net
15.07.26 - 22:27
Elvar Geir Magnússon

„Þjálffræðilegt stórslys“ - Sutton vill Tuchel burt

Spjótin beinast að Tuchel.

Spjótin beinast að Tuchel.

Canon

Mynd: EPA

Spjótin beinast að Thomas Tuchel, landsliðsþjálfara Englands, eftir að Englendingar misstu niður forystu gegn Argentínu í undanúrslitum HM í kvöld. Chris Sutton, sparkspekingur BBC, sér ekki að hann geti verið rétti maðurinn til að leiða liðið áfram.

„Þetta var þjálffræðileg katastrófa frá Thomas Tuchel. Hvernig England kemst yfir og hleypir svo Argentínu inn í þetta. Liðið varðist of aftarlega og hver varnarmaðurinn á fætur öðrum kom inná. Í fótbolta þarftu að komast upp völlinn," segir Sutton, sem lék einn landsleik fyrir England á ferlinum.
Rooney: Ákvarðanir Tuchel kostuðu okkur
TENGT EFNI

Rooney: Ákvarðanir Tuchel kostuðu okkur

„Þú getur ekki ætlast til þess að verjast í hálftíma gegn gæðunum sem Argentína er með. Þjálfarinn ber alla ábyrgðina, hann gerir þessar breytingar. Hann var neikvæður. Hvernig er hægt að treysta Thomas Tuchel til að leiða liðið áfram?"

„Mér finnst þetta argentínska lið ekki sérstakt en þeir litu frábærlega út síðasta hálftímann. Ég tel að England hafi hjálpað þeim með það. Mér fannst þetta stórslys frá þjálfaranum."

Ýmsir hafa lagt orð í belg. Þar á meðal er Michael Owen, fyrrum landsliðsmaður Englands. Hann segist sannfærður um að England hafi betra lið en Argentína en enska liðinu hafi skort hugrekki og það átt skilið að tapa.

Svekktir Englendingar á Benidorm.

Svekktir Englendingar á Benidorm.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.