Manchester City hefur lánað kantmanninn Patrick Roberts til systurfélagsins Girona út leiktíðina.
Girona varð systurfélag Manchester City á síðasta ári en síðan þá hafa margir leikmenn farið frá City til Girona á lánssamningi.
Hinn 21 árs gamli Roberts gekk í raðir City frá Fulham árið 2015, en hann hefur síðan þá verið í láni hjá Celtic í Skotlandi. Hann var hluti af liðinu sem fór í gegnum tímabilið 2016/17 ósigrað í skoska boltanum.
Hann var orðaður við endurkomu til Celtic en fer til Girona sem endaði í 10. sæti spænsku úrvalsdeildarinnar sem nýliði á síðust leiktíð.
Girona hefur leik í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld gegn nýliðum Real Valladolid.
Athugasemdir