Paulo Bento, fyrrum landsliðsþjálfari Portúgal, hefur verið ráðinn þjálfari Suður-Kóreu.
Bento tekur við af Shin Taeyong sem stýrði Suður-Kóreu á HM í sumar.
Suður-Kórea datt út í riðlakeppninni á HM þrátt fyrir frækinn sigur á Þýskalandi í lokaumferð riðilsins.
Hinn 49 ára gamli Bento stýrði portúgalska landsliðinu á EM 2012 og HM 2014.
Bento var síðast þjálfari Chongqing Lifan í Kína en hann hefur einnig þjálfað Olympiakos í Grikklandi og Cruzeiro í Brasilíu.
Athugasemdir