Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 17. ágúst 2019 15:33
Ívan Guðjón Baldursson
2. deild: Topplið Leiknis tapaði á Vogum
Mynd: Aðsend
Þróttur V. 2 - 0 Leiknir F.
1-0 Ingvar Ásbjörn Ingvarsson ('65)
2-0 Alexis Alexandrenne ('69)
Rautt spjald: Leiknir F. ('71)

Topplið Leiknis frá Fáskrúðsfirði tapaði fyrir Þrótti í Vogum er liðin mættust í 2. deildinni í dag.

Staðan í deildinni er hnífjöfn og stytta þessi úrslit bilið á milli liða enn frekar. Nú eru aðeins tíu stig sem skilja toppsætið að frá því níunda.

Staðan í dag var markalaus þar til á 65. mínútu þegar Ingvar Ásbjörn Ingvarsson skoraði. Skömmu síðar tvölfadaði Alexis Alexandrenne forystuna og fékk leikmaður Leiknis að líta rauða spjaldið.

Leiknir er með þriggja stiga forystu á toppi deildarinnar á meðan Þróttur er kominn upp í 5. sæti, þremur stigum frá öðru sætinu og sex stigum eftir Leikni.

Það getur tekið tíma fyrir stöðutöfluna að uppfæra sig.

Markaskorarar af urslit.net
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner