Fotbolti.net
17.08.21 - 20:56
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Óskar Smári: Stelpurnar eru brjálaðar inn í klefa núna

Auglýsing
Óskar Smári: Stelpurnar eru brjálaðar inn í klefa núna
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
„Mjög svekkjandi, finnst við hafa unnið fyrir allavega stigi hér í dag," sagði Óskar Smári Haraldsson þjálfari Tindastóls eftir 1-0 tap gegn Þór/KA í Pepsi Max deild kvenna í dag.
„Þetta var mjög kaflaskiptur leikur, Þór/KA voru betri í fyrri hálfleik, okkur fannst við vera betri í seinni hálfleik en 0 stig er uppskeran og það er helvíti sárt."

Nadejda Colesnicenco kom inná sem varamaður í hálfleik og Óskari fannst hún breyta leik liðsins til hins betra.

„Við þurftum að fá aðstoð inná miðjunni og aðeins að breyta innan liðsins, okkur fannst þetta ekki nægilega gott í fyrri hálfleik og breytingin tókst vel. Það kom kraftur með Nadejda inn á miðsvæðið hjá okkur sömuleiðis gott að fá Jackie út á kanntinn."

„Breytingarnar í hálfleik skiluðu sér klárlega úti á vellinum en ekki nægilega mikið til að fá markið, það er það sem svíður mest við það."

Það er komin gríðarleg spenna í botnbaráttuna en Óskar er bjartsýnn á að liðið nái sínum markmiðum.

„Við erum ennþá í góðum möguleika að ná okkar markmiðum, Keflavík vinnur ÍBV, við pælum ekki í því, við erum í fullu fangi með okkur sjálf og við fókusum bara á okkur, auðvitað fúllt og pirrandi en við erum bara að fókusa á okkur og í dag fengum við 0 stig og við settum upp að ná í þrjú stig og það er það sem svíður mest.

„Framhaldið er gott, við erum hvergi hættar, stelpurnar eru brjálaðar inn í klefa núna því þeim fannst þær hafa unnið fyrir allavega stigi. Við eigum leik á móti Val í næsta leik og það er bara kassinn út og hakan og mæta Val á fullum krafti og sjá hvort við getum ekki gert skemmtilega hluti þar."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.