Fotbolti.net
17.08.23 - 17:14
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

„Aldrei spurning um að hann myndi koma inn og setja mark sitt á þetta lið"

„Aldrei spurning um að hann myndi koma inn og setja mark sitt á þetta lið"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Joey Gibbs hefur komið öflugur inn af varamannabekk Stjörnunnar í síðustu leikjum og í síðustu tveimur hefur hann náð að skora.

Ástralski framherjinn var fenginn frá Keflavík fyrir tímabilið og voru gerðar væntingar til hans sem hann stóðst ekki fyrri hluta tímabilsins. Hann glímdi við meiðsli og þegar hann spilaði náði hann ekki að setja mark sitt nægilega á leik Stjörnunnar.

Jökull Elísabetarson var spurður út í Gibbs eftir leik Stjörnunnar og Fylkis fyrr í þessari viku.
Hvað er Gibbs að gera núna sem hann var kannski ekki að gera fyrir nokkrum vikum síðan?

„Þetta er bara farið að detta fyrir hann. Hann er ótrúlegur liðsmaður, búinn að sýna frábært hugarfar, frábær í hópnum, leggur hart að sér, búinn að eiga margar virkilega góðar innkomur í leikina okkar en hefur ekki náð að setja markið."

„En það var aldrei spurning um að hann myndi koma inn og setja mark sitt á þetta lið. Það er ekkert annað en að 'end productið' er að fylgja með núna. Hingað til hefur hann verið frábær,"
sagði Jökull.

Gibbs er 31 árs og kom fyrs til Íslands fyrir tímabilið 2020. Hann raðaði inn með Keflavík 2020 í Lengjudeildinni, skoraði tíu mörk 2021, fimm mörk 2022 og hefur í sumar skorað tvö mörk í tólf deildarleikjum.

Jökull: Vona að eitthvað lið kaupi hann

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.