Davíð Smári: Ákveðið ákefðarleysi yfir okkur

Davíð Smári Lamude, þjálfari Njarðvíkur

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Davíð Smári Lamude, þjálfari Njarðvíkur

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

„Ekki góð, bara allt of margir einstaklingar sem áttu ekki góðan dag í dag,“ sagði Davíð Smári Lamude, þjálfari Njarðvíkur, eftir 3-1 tap gegn ÍR í dag.
„Bara vonbrigði. Við leyfðum ÍR-ingunum að spila sinn leik. Við náðum aldrei að mæta þeim í ákefð og ÍR-ingar gerðu bara sitt gríðarlega vel, notuðu öll trikk í bókinni og bara virðing á það, það er bara þannig. Náðu að hægja leikinn þegar þurfti og náðu, að mér fannst, kannski mögulega að fara inn í hausinn á mönnum og ég er ekki að búa til afsakanir ég er bara að hrósa ÍR-ingum. Þeir, eins og ég segi, notuðu öll trikk í bókinni, loðinn völlur, engir boltasækjarar og völlurinn í seinni hálfleik bara vökvaður öðrum megin og þetta bara fór í hausinn á okkur og við bara töpuðum leiknum verðskuldað. Ég er ekkert að segja bara út af því við vorum bara, mér fannst við ekki vilja þetta jafn mikið og ÍR-ingar,“ hélt hann svo áfram.
Grunngildin vantaði í leik Njarðvíkur í dag og komu seinni tvö mörk ÍR þar sem þeir voru óvaldaðir í teignum, það hljóta að vera vonbrigði:
„Gríðarleg vonbrigði yfir okkar varnarleik og náðum aldrei að stíga á þá og náðum aldrei að búa til einhver pressumóment og nýttum stöðurnar okkar ekki vel. Náðum að skapa hálffæri, nýttum þau ekki. Slitnaði allt of mikið inn á milli hjá okkur, langt á milli, unnum ekki seinni bolta. Ákveðið ákefðarleysi yfir okkur í dag, því miður.“
Viðtalið við Davíð má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
