Fotbolti.net
17.08.26 - 19:58
Ívan Guðjón Baldursson

Besta deildin: Átta mörk á Hlíðarenda

Besta deildin: Átta mörk á Hlíðarenda
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valur 4 - 4 KA
0-1 Jakob Snær Árnason ('5 )
0-2 Hallgrímur Mar Steingrímsson ('16 )
1-2 Hólmar Örn Eyjólfsson ('21 )
1-3 Jakob Snær Árnason ('39 )
2-3 Patrick Pedersen ('61 )
3-3 Patrick Pedersen ('67 )
3-4 Hallgrímur Mar Steingrímsson ('78 )
4-4 Tryggvi Hrafn Haraldsson ('83 )
Lestu um leikinn: Valur 4 - 4 KA
Valur tók á móti KA í gríðarlega skemmtilegum fótboltaleik sem var að ljúka rétt í þessu. Liðin mættust í Bestu deild karla og byrjuðu gestirnir frá Akureyri af krafti. Jakob Snær Árnason gerði vel að leika á andstæðing og klára með marki eftir sendingu frá Adam Ægi Pálssyni á fimmtu mínútu leiksins.

Heimamenn reyndu að svara fyrir sig en gestirnir skoruðu í staðinn eftir mistök hjá Frederik Schram á milli stanganna. Hallgrímur Mar Steingrímsson skoraði með skoti af 25 metra færi sem Frederik átti að ráða við.

Skömmu síðar minnkaði Hólmar Örn Eyjólfsson muninn með skalla eftir fyrirgjöf frá Tryggva Hrafni Haraldssyni í kjölfar hornspyrnu og komust Valsarar nálægt því að jafna metin í næstu sóknum, en tókst ekki. Þess í stað tvöfaldaði KA forystuna á nýjan leik eftir slaka pressu Vals. Adam Ægir gerði vel að finna Kára Gautason sem gaf fastan bolta meðfram jörðinni á Jakob Snæ sem gerði vel að klára með marki.

Staðan var því 1-3 í leikhlé þar sem Akureyringar nýttu nánast öll færin sín. Heimamenn nýttu færin sín ekki jafn vel en þeir skiptu um gír í síðari hálfleik og voru óheppnir að minnka ekki muninn á upphafsmínútunum.

Danska markavélin Patrick Pedersen lét til sín taka í síðari hálfleiknum. Patrick minnkaði muninn og jafnaði svo metin eftir tvö löng innköst sem komu með sex mínútna millibili, svo staðan var orðin 3-3 eftir 67 mínútur og voru menn ekki hættir að skora.

Hallgrímur Mar endurheimti forystu KA þegar boltinn datt heppilega fyrir hann á 78. mínútu en skömmu síðar tókst Tryggva Hrafni að jafna eftir frábæran undirbúning frá Lúkasi Loga Heimissyni. Lúkas Logi komst svo nálægt því að taka forystuna fyrir heimamenn áður en Hörður Ingi Gunnarsson skallaði í slána í uppbótartíma, en boltinn rataði ekki aftur í netið. KA fékk svo tækifæri til að stela sigrinum á lokasekúndunum en Frederik gerði vel að verja skallatilraun eftir hornspyrnu.

Lokatölur urðu því 4-4 og er Valur með 23 stig eftir 19 umferðir, sjö stigum fyrir ofan KA sem situr í fallsæti.
Besta deildin: Átta mörk á Hlíðarenda
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Besta deildin: Átta mörk á Hlíðarenda
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Besta deildin: Átta mörk á Hlíðarenda
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.