17.08.26 - 16:13
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Oliver Sigurjóns kom inn í þjálfarateymi Blika

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Oliver Sigurjónsson var á skýrslu hjá Breiðabliki sem aðstoðarþjálfari í gær þegar liðið heimsótti KR í Bestu deildinni. Oliver, Jón Guðni Fjóluson og Emil Pálsson voru skráðir aðstoðarþjálfarar og Haraldur Björnsson markmannsþjálfari, en Ólafur Ingi Skúlason er aðalþjálfari liðsins.
Oliver, sem er 19. leikjahæsti leikmaður í sögu Breiðabliks skv. blikar.is, lagði skóna á hilluna eftir síðasta tímabil en þá lék hann með Aftureldingu. Samkvæmt síðunni lék Oliver 243 leiki með Blikum og skoraði tíu mörk.
Í vetur var hann svo ráðinn sem annar af þjálfurum venslaliðsins Augnabliks og er hann aðstoðarþjálfari í 2. flokki Breiðabliks.

Lestu um leikinn: KR 3 - 3 Breiðablik
Oliver kom inn í þjálfarateymið fyrir styrktarþjálfarann Helga Jónas Guðfinnsson sem tók út leikbann eftir að hafa fengið rautt spjald í leiknum gegn Val.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð