Fotbolti.net
17.08.26 - 18:47
Ívan Guðjón Baldursson

Rodri er lentur: Draumur að rætast

Rodri er lentur: Draumur að rætast
Canon

Mynd: EPA

Spænski miðjumaðurinn Rodri er lentur í Barcelona þar sem hann gengst undir læknisskoðun og skrifar undir samning við Spánarmeistarana eftir sjö sigursæl ár með Manchester City.
Man City samþykkti þriðja tilboðið frá Barca
TENGT EFNI

Man City samþykkti þriðja tilboðið frá Barca

Fjölmiðlar mættu honum á flugvellinum í Barcelona og sagði Rodri nokkur orð.

„Ég er ánægður að vera kominn hingað, þetta hafa verið mjög annasamir dagar og ég er himinlifandi að vera kominn. Þetta er draumur að rætast," sagði Rodri, sem átti aðeins eitt ár eftir af samningi í Manchester.

„Við ætlum að reyna að vinna Meistaradeildina og allar aðrar keppnir sem við tökum þátt í."

Rodri, sem var besti leikmaður heimsmeistaramótsins í sumar, gerir fjögurra ára samning við Barca.

Rodri er lentur: Draumur að rætast
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.